Parhús með kjallara og þakverönd með sjávarútsýni í Mar de Pulpí, Almería

Costa Cálida, Costa Murcia Sur, San Juan de los Terreros

frá 57,488,300 kr
frá 383.000€

2

2

140.00 m2

251.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5478425

Kjarni í fyrstu línu við strönd í Mar de Pulpí, í Almeríu. Eignirnar eru hannaðar í hefðbundnum stíl Andalúsíu, með hvítum veggjum og ávölum hornum. Öll nauðsynleg þjónusta er í boði í næsta nágrenni, allt frá matvöruverslunum, veitingastöðum og hótelum til góðrar aðstöðu til íþróttaiðkana, þar með talið vatnasport. Stór 70.000 m2 garður er aðgengilegur fyrir íbúa með leiksvæði fyrir börn og úti líkamsræktarbúnaði og á staðnum er glæsilegur strandbar og veitingastaður, opinn allt árið um kring. Góðar samgöngur eru frá svæðinu um vegi og með lestum, auk þriggja alþjóðlegra flugvalla. Kjarninn skiptist í mismunandi svæði sem hvert hefur sitt sameiginlega rými, með sundlaugum og görðum, ásamt nuddpottum og finnsku gufubaði.

Parhús á tveimur hæðum með 2 eða 3 svefnherbergjum, kjallara og sérgarði, fáanleg í mismunandi gerðum. Veldu á milli einbýlishúss með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, með eða án þakverönd; eða parhús með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og þakverönd. Allar útgáfur húsanna eru með stofurými sem sameinar setustofu, borðstofu og eldhús í eitt rými sem opnast út á verönd og garðsvæði. Öll svefnherbergin eru á annarri hæð, nema húsið sem er með 3 svefnherbergjumen það er með svefnherbergi og baðherbergi á jarðhæð. Hægt er að komast að þakveröndinni úr stiga sem er að innanverðu.

Öll húsin eru með loftræstikerfi, gólfhita á baðherbergjum og einkabílastæði á lóðinni. Það fer eftir byggingarstigi, en verktakinn býður upp á möguleika á að sérsníða frágang og aukalega er hægt að byggja sundlaug í garðinum.

Möguleiki er að festa kaup á húsgagnapökkum og öðrum búnaði og eigendum stendur til boða þjónusta við útleigu og eftirlit, sem gerir eignirnar að góðu tækifæri til fjárfestingar.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Costa Murcia Sur, San Juan de los Terreros

Strandbærinn San Juan de los Terreros tilheyrir Pulpí í Almeríu, sem liggur að Murcia-héraði. Bærinn er þekktur fyrir fallegar strendur og tvær eldfjallaeyjur útaf ströndinni eða Isla de Terreros-Isla Negra Natural.

Á undanförnum árum hefur ferðamennska á svæðinu aukist, þökk sé ströndunum og uppbyggingu þjónustu í kring. Tilvalin staðsetning fyrir íþróttaáhugamenn, sérstaklega þá sem unna vatnaíþróttum. Milt Miðjarðarhafsloftslagið býður uppá að hægt sé að stunda þær allan ársins hring.

  • 95 km
  • 103 km
  • 85 km
  • 0 km
  • 110 km
  • 105 km

Nánari upplýsingar um San Juan de los Terreros

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.