Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 3036166
Nýr kjarni með nútímalegum einbýlishúsum aðeins 200 metra frá sjó.
Húsakjarninn er staðsettur á bökkum Mar Menor, Los Alcazares, aðeins 7 km frá San Javier flugvellinum og nokkrar mínútur frá La Serena golfvellinum. Greiður aðgangur er að alls konar þjónustu í næsta nágrenni og fallegum ströndum.
Húsin eru byggð á allt að 500 m2 lóðum og hafa 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi, tvo af þeim eru ensuite. Eldhús er opið inn í rúmgóða og bjarta stofu og verandir á efri hæð búa að útsýni að sjó. Velja má um tvo ólík módel húsa en munurinn veltur á staðsetningu húsanna og stærð veranda.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum