Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 3036433
Einbýlishús í Los Alcazares, staðsett milli golfvallarins La Serena Golf og verndaðs náttúrusvæðis við hliðina á Mar Menor, 5 mínútur frá miðbænum í Los Alcazares.
Stór opin rými með útsýni yfir garðinn, sem miða að því að njóta sólarinnar við Miðjarðarhafið. Húsin eru á tveimur hæðum og hafa 3 stór svefnherbergi, 2 baðherbergi og nútíma glæsilegt eldhús opið að rúmgóðri stofu. Stofan er einkennist af stórum gluggum sem opna má til fulls og gera þannig veröndina að framlengingu á stofu.
Húsin eru byggð á lóðum allt að 236m2 með einkasundlaug. Þakverandir, allt að 25m2, og bílskúr meira en 13m2.
Húsin hafa fullbúin eldhús og eru klár fyirr uppsetningu á loftkælingu.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum