Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 3628212
Íbúðakjarni í Santa Rosalía sem er nýtt og einstakt svæði með kristaltæru lóni, þar sem hægt er að stunda ýmsar vatnaíþróttir. Stórir garðar, íþróttamannvirki, félagshús og öryggi allan sólarhringinn með jaðargirðingu er enn fremur í boði á þessu einstaka svæði við strandlengjuna, aðeins 4 km frá ströndum Murcia.
Kjarninn býður upp á íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, í mismunandi gerðum; íbúðir á jarðhæð með stórum veröndum íbúðir á miðhæð með verönd; og þakíbúðir með þakverönd. Til viðbótar við alla aðstöðu í Santa Rosalía kjarnanum, er einnig sameiginleg sundlaug við íbúðakjarnann. barnasvæði, garðar og bílastæði í bílakjallara.
Allar íbúðirnar eru með loftkælingu, gólfhita á baðherbergjum, rafmagnsgluggahlerum í svefnherbergjum, LED lýsingu, geymslu og bílastæði þar sem lagt er fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla.Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum