Íbúð með þakverönd í San Pedro del Pinatar

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

frá 37,960,290 kr
frá 252.900€

2

2

61.41 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4902512

Nýr íbúðakjarni í San Pedro del Pinatar, í hjarta Costa Cálida. Öll nauðsynleg þjónusta er í göngufjarlægð, auk tækifæra til að stunda íþróttir af ýmsu tagi og fjölda golfvalla í stuttri akstursfjarlægð. Kjarninn er í um 3 km fjarlægð frá ströndum El Mojón og er fyrir framan Las Salinas náttúrugarðinn, sem er frábær til að ganga og hjóla um.  Svæðið er vel tengt vegakerfinu og er auðvelt að komast til Murcia, Cartagena og Alicante. Murcia flugvöllurinn er í einungis 35 mínútna akstursfjarlægð og flugvöllurinn í Alicante er í um 50 mínútna fjarlægð.

Kjarninn býður upp á nútímalegar íbúðir með 1 eða 2 svefnherbergjum í tveimur mismunandi útgáfum; jarðhæðir með rúmgóðri verönd og beinu aðgengi að sameiginlegri sundlaug, og íbúðir á efri hæð með þakverönd. Íbúðirnar eru með eldhúsið, stofuna og borðstofuna í opnu rými sem opnast út á svalir, sumar með aukarými sem svipar til búrskáps. Veröndin er lokuð að hluta í sumum íbúðanna og það svæði því kjörið til að borða úti með fjölskyldu og vinum. Hjónaherbergið í íbúðunum sem eru með 2 svefnherbergi er með baðherbergi inn af.

Allar íbúðirnar eru með tilbúið eldhús, tengi fyrir gas hitun, tengi fyrir loftkælingu, loftræstingu með orkusparandi kerfi, fullbúna fataskápa og bílastæði með tengi fyrir rafbíla.

Sameiginlega svæðið er með sundlaug með fossi, afslöppunarsvæði, útisalerni og sólarsellur fyrir útisvæðið.

See more...

  • opin verönd
  • bílastæði
  • þakverönd
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.

Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.

  • 43 km
  • 7 km
  • 30 km
  • 2 km
  • 15 km
  • 11 km

Nánari upplýsingar um San Pedro - Lo Pagan

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.