Einbýli á einni hæð með 3 svefnherbergjum og einkasundlaug í La Serena Golf, Los Alcazares

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

frá 58,523,990 kr
frá 389.900€

3

2

121.50 m2

229.40 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5148925

Nýr kjarni nútímalegra húsa í La Serena Golf resort, sem er í um 1,5km fjarlægð frá ströndinni í Los Alcazares. Svæðið er með 18 holu golfvelli auk klúbbhúss með pro-búð, veitingastað og bar með verönd með útsýni yfir golfvöllinn sjálfan og yfir til Mar Menor. Bærinn Los Alcazares er nærri og býr upp á alla daglega þjónustu, s.s. matvöruverslanir, búðir, veitingastaði, banka og apótek, skóla og heilsugæslu. Svæðið er þekkt fyrir fjölda golfvalla en þar eru einnig ýmis tækifæri til að stunda útivist, s.s. göngur, fjallahjólamennsku, vatnasport eins og siglingar og köfun. Flugvöllurinn í Murcia er í um 30 mínútna akstursfjarlægð og flugvöllurinn í Alicante er í um klukkustundarfjarlægð, þökk sé AP7 hraðbrautinni.

Kjarninn samanstendur af einbýlishúsum í „Ibiza-stíl“, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, með hvítum veggjum, mjúkum línum og bjálkum yfir loftin. Hægt er að velja um tvær gerðir húsa; tveggja hæða einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum eða einbýlishús á einni hæð með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Báðar gerðir húsa hafa opna setustofu, borðkrók og eldhús og alrýmið opnast út á rúmgóða verönd með pergólu og einkasundlaugarsvæði. Gegn aukakostnaði og eftir byggingarstigi er hægt að byggja þakverönd á báðum húsunum.

Gæðafrágangur er á húsunum og þeim fylgir foruppsetning fyrir loftkælingu, inni- og útilýsing, einkasundlaug, foruppsetning fyrir vélknúið hlið og bílastæði á lóð.

See more...

  • sundlaug
  • verönd
  • garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.

Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.

  • 27 km
  • 21 km
  • 17 km
  • 1 km
  • 29 km
  • 25 km

Nánari upplýsingar um Los Alcázares

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.