Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
REF 5765273
Samstæðan mun samanstanda af tólf blokkum á fjórum hæðum hver, með íbúðum af mismunandi gerðum; jarðhæðareignir með 3 svefnherbergjum og sér garði, miðhæðaeignir með 2 svefnherbergjum og verönd og ein þakíbúð í hverri blokk með 3 svefnherbergjum og tveimur stórum veröndum. Allar íbúðirnar hafa rúmgóða og opna setustofu, borðkrók og eldhús, með stórum gluggum sem opnast út á verönd og í þeim eru 2 baðherbergi, þar af eitt en-suite fyrir hjónaherbergið. Hægt er að sérsníða skipulag þakíbúða eftir byggingarstigi þannig að koma megi fyrir gestasalerni eða auka geymslu. Með viðarklæðningu sem hluta af innri hönnun næst hlýtt og aðlaðandi andrúmsloft. Eignunum fylgja rafmagnsgluggahlerar, innbyggðir fataskápar, fullbúin baðherbergi, foruppsetning fyrir loftkælingu, þjófavarnarkerfi, myndavélardyrasími, geymsla og bílastæði.
Auk aðstöðunnar sem er í boði á dvalarstaðnum hefur samstæðan sér sameiginlegt svæði, með stórum garði og sundlaug, auk bílastæða undir berum himni.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum