Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 2161410
Kjarni einbýlishúsa í San Javier, aðeins 3km frá fallegum ströndum Mar Menor í Murcia. San Javier er heillandi spænskur bær við Costa Cálida, með öllum daglegum nauðsynjum. Fjölbreytt úrval tómstunda er í boði á svæðinu, allt frá íþróttum og golfi til gönguferða og verslanaferða. AP7 og N332 vegirnir tengjast öðrum borgum og svæðum, eins og Cartagena, Murcia, Orihuela Costa, Torrevieja og Alicante.
Einbýlishús, byggð á lóðum milli 600 og 612m2 að stærð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, þvottahúsi, grillaðstöðu, geymslu og salerni í garðinum. Stofan er tengd eldhúsinu og borðstofunni og opnast útá verönd, grill- og sundlaugarsvæði. Hjónaherbergi er með sér baðherbergi og fataherbergi. Öll 3 svefnherbergin hafa beinan aðgang að verönd og sundlaug. Tvöfaldur bílskúr fylgir húsinu.
Gera má ýmsar breytingar að eigin vild en fataskápar, loftkæling/hitun og hluti eldhústækjanna fylgja húsunum, ásamt lýsingu, myndavélardyrasíma og þjófavarnarkerfi. Garðurinn er fullkláraður, með rafknúnu hliði og tvöföldum bílskúr.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum