Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 3055679
Nýr kjarni einbýlishúsa í íbúðahverfi Santiago de la Ribera, sem býður uppá alla nauðsynlega þjónustu dag frá degi, staðsett við Mar Menor. Húsin eru staðsett rúmlega 1 km frá sjó, í grenndinni er fallegur furuskógur. Tilvalinn staður til að njóta útiveru, hvíldar og veðurblíðunnar.
Í kjarnanum eru nokkrar lóðir í boði þar sem velja má um tegund húss; tveggja hæða hús með 3 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum, með eða án þakverandar, eða hús á einni hæð með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum með þakverandar. Húsin eru búin nútíma hönnun með stórum gluggum og eru björt og falleg. Þau samanstanda af opinni stofu, borðstofu og fullbúnu eldhúsi ásamt suður verönd og stórum garði framan við húsið. Öllum eignum fylgir einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum