Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 226242
Nýr einbýlishúsakjarni í San Pedro del Pinatar, rólegum bæ við Mar Menor. Í nágrenninu er þjónusta; matvöruverslanir, apótek og verslunarmiðstöðin Dos Mares, svo eitthvað sé nefnt.
Húsin eru á 2 hæðum og samanstanda af 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, opinni stofu, borðstofu og eldhúsi. Á efri hæð eru 2 verandir, önnur þeirra útaf svefnherbergi. Húsin eru byggð á allt að 235.06m2 lóðum og hafa flísalagðan garð, einkasundlaug og bílastæði á lóð. Kjarninn er mjög nálægt miðbænum og aðeins 1,5 km frá ströndinni.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum