Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 3598018
Nýr íbúðakjarni í San Pedro del Pinatar, við Costa Cálida, í göngufæri frá verslanakjarna, læknamiðstöðinni á staðnum og miðbænum með ýmsum verslunum, börum og veitingastöðum. Strendur Miðjarðarhafsins og Mar Menor eru báðar í 2 km fjarlægð og mögulegt að ganga eða hjóla á ströndina. Svæðið er vel tengt við önnur helstu svæði og borgir eins og Orihuela Costa, Murcia og Alicante, um AP7 hraðbrautina.
Íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, annað hvort á jarðhæð með stórri verönd eða á efstu hæð með rúmgóðri þakverönd. Íbúðirnar hafa alrými sem sameinar stofu, borðstofu og eldhús og fjölnota rými sem breyta má í 3ja svefnherbergið, með rúmi sem tekið er saman. Hjónaherbergi eru með sér baðherbergi. Íbúðir á jarðhæð eru með rúmgóðri 40m2 verönd með geymslueiningu; en íbúðir á efstu hæð búa að 75m2 þakverönd þar sem finna má útihúseldhús, gasgrill og þvottaaðstöðu. Sameiginlegt svæði eru garðar í strandarstíl, með nuddpotti og upphitaðri sundlaug með mótstraumsaðstöðu, sem allir íbúar geta notið.
Íbúðirnar eru hannaðar með náttúrulegu og hlýju útliti og þeim fylgir loftkæling, gólfhiti á baðherbergjum, eldhústæki, LED-lýsing, þvottaaðstaða og einkabílastæði.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum