Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 3739613
Nútíma einbýlishús í friðsælu íbúðahverfi í San Pedro del Pinatar, við strendur Murcia. Stutt er í miðbæinn þar sem fjölbreytt úrval þjónustu er í boði, úrval af matvöruverslunum, veitingastöðum og bönkum ásamt heilsugæslu og alþjóðlegum skóla. Stórkostlegar strendur Pilar de la Horadada og San Pedro eru í aðeins 2 km fjarlægð. Þá má finna hjólreiðastíga og íþróttamannvirki með innisundlaug, fótboltavöllum, tennisvöllum og líkamsræktarstöð.
Tveggja hæða einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, á stórri lóð eða 281m2. Húsið hefur einstaka hönnun, þar sem aðalhæðin er tvö opin svæði, með setustofu, borðstofu og eldhúsi í amerískum stíl. Bæði svæðin hafa beinan aðgang að veröndinni og sundlaugarsvæðinu. Svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús eru einnig á þessari hæð. Rúmgott hjónaherbergi, með sér fataherbergi og baðherbergi, ásamt þriðja svefnherberginu og öðru baðherbergi, eru á efri hæð. Bæði svefnherbergin opnast út á verönd með útsýni yfir sundlaugina. Gegn aukakostnaði má byggja fjórða svefnherbergið á efri hæðinni.
Í húsinu er foruppsetning fyrir loftkælingu, innbyggð eldhústæki, lýsing í garði, einkasundlaug með nuddpotti og foruppsetningu fyrir varmadælu, fullfrágenginn garður og bílastæði á lóð með hleðslustöð fyrir rafbíla.Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum