Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 4775684
Nýr íbúðakjarni í San Pedro del Pinatar, vinsælum strandbæ við Costa Cálida. Nálægt allri nauðsynlegri þjónustu í bænum og rétt hjá saltvötnunum í San Pedro auk þess sem stutt er að aka að ströndinni í Torre de la Horadada. Tilvalin staðsetning fyrir þá sem vilja dvelja allan ársins hring eða þá sem nýta vilja eignina í fríum. AP-7 hraðbrautin er skammt undan og tengir svæðið við flugvelli í Murcia og Alicante.
Kjarninn býður upp á nútímalegar íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, fáanlegar á jarðhæð með stórri verönd eða með þakverönd. Stórir gluggarnir í stofunni bjóða birtunni inn sem býr til góða stemmningu fyrir rúmgott eldhúsið, stofuna og borðstofuna sem eru í einu opnu rými. Verönd allra íbúðanna snýr að sundlauginni og grænum sameiginlegum svæðum.
Allar íbúðirnar eru með forútbúinni loftkælingu, eldhústækjum og einka bílastæði. Möguleiki er á að kaupa geymslu aukalega.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum