Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
REF 5362698
Nútímalegt einbýlishús í San Pedro del Pinatar, á Costa Cálida. Allar daglegar nauðsynjar eru í göngufæri, eins og til dæmis stórmarkaðir, bankar, apótek, verslanir og veitingastaðir, sem og Mar Menor strendurnar. San Pedro del Pinatar er frægur fyrir saltlónin sín og miðstöðvar sem sérhæfa sig í meðferð sem kallast „thalassotherapy“ (saltvatnsmeðferð). Svæðið býður einnig upp á mikið úrval af útivist, eins og golf, vatnsíþróttir, siglingar, gönguferðir og hjólreiðar. AP7 hraðbrautin tengir svæðið vel við önnur svæði og er einunugis innan við klukkustundakstur til Murcia og Cartagena á Costa Cálida, og Orihuela Costa, Guardamar og Alicante á Costa Blanca.
Parhús á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum ásamt þakverönd. Á jarðhæðinni er opin setustofa, borðstofa og eldhús með morgunverðarbar. Stóru gluggarnir í setustofunni opnast út á verönd með einkasundlaug. Hjónaherbergi og fullbúið baðherbergi er einnig á þessari hæð. Hjónaherbergi, með sér baðherbergi og verönd, er á annarri hæð, sem og annað svefnherbergi og baðherbergi. Innri stiginn leiðir að þakveröndinni en þar er útieldhús sem gerir þakveröndina að fullkomnum stað til að njóta allt árið um kring, hvort sem það er fyrir sólríka hádegisverði á veturna eða fyrir notalega kvöldverði á sumrin.
Þessi hús eru með foruppsetningu fyrir loftræstikerfi, fullbúið eldhús með tækjum, gólfhita á baðherbergjum, rafmagnsgardínur, útieldhús á þakveröndinni með foruppsetningu fyrir þvottavél og lítinn ísskáp, einkasundlaug með útisturtu og bílastæði á lóðinni.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum