Íbúðir með 3 svefnherbergjum, einkagarði og sjávarútsýni, stutt frá golfvellinum í Casares

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona, Casares

frá 113,100,350 kr
frá 753.500€

3

2

130.76 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4979656

Nýr íbúðakjarni í Casares, stutt frá golfvellinum og innan við 10 mínútum frá strönd. Svæðið liggur á milli Estapona og Manilva og hefur öðlast vinsældir á síðustu árum vegna stórkostlegra golfvalla, og miklu úrvali veitingastaða og afþreyingar möguleika. Casares er eitt frægasta hvíta þorpið á Costa del Sol með rómuðum bröttum tröppum og hvítþvegnum húsalengjum í fornum stíl. Kjarninn er á upphækkuðum svæði sem gerir það að verkum að íbúðirnar njóta mikils útsýnis til sjávar. Fyrir útivistarfólk eru gönguleiðir í nálægum fjöllum, vatnasport og hestasvæði, póló vellir og fjöldi golfvalla í 10 mínútna radíus við kjarnann, s.s. La Reserva Golf Club, La Finca Cortesín Golf, Doña Julia Golf Resort og Sotogrande Royal Golf Club. Gott vegakerfið gerir það auðvelt að komast til annara staða, s.s. til Estapona á um 15 mínútum, til Manilva á 20 mínútum og til Marbella og Puerto Banús á 35 mínútum. Til flugvallarins í Malaga er um klukkustund og um 45 mínútur til flugvallarins á Gíbraltar.

Nútímalegar íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, fáanlegar í nokkrum útgáfum; jarðhæðir með einkagarði,og  miðhæðir og þakíbúðir með stórri verönd. Allar íbúðirnar eru með opnu skipulagi sem sameinar stofu, eldhús og borðstofu sem opnast út á verönd. Hjónaherbergið er með baðherbergi innaf og flestar íbúðirnar eru með svefnherbergi sem er með aðgengi út á svalir.

Allar íbúðirnar eru með loftkælingu sem bæði hitar og kælir, fullbúin eldhús, geymslu og eitt eða tvö bílastæði með tengi fyrir hleðslu rafbíla.

Kjarninn er alveg lokaður og er með frábær sameiginleg svæði; með sundlaug, stórum grænum svæðum, fullbúinni líkamsrækt, Spa með búningsherbergjum, sturtu aðstöðu og salerni, auk samvinnurýmis í sal sem er með eldhúsi til afnota fyrir íbúa sem kjósa að vinna í rýminu.

See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona, Casares

Casares er bær í Málaga héraði, Andalúsíu, við suðurströnd Spánar. Hann er staðsettur við mörk Cádiz héraðs og tilheyrir vestur Costa del Sol.

Casares er týpískur andalúsískur bær, með hvítum húsum og þröngum og hlykkjóttum, bröttum götum. Casares skiptist í  tvö svæði; Casares Costa, sem er íbúðabyggð við strandlengjuna, með verslanamiðstöð, börum og veitingastöðum, og gamla sögulegan bæinn Casares, sem liggur nokkra kílómetra í átt að fjöllunum og 430m fyrir ofan sjávarmál. Casares Costa er mjög vel staðsett til að skoða vestur Costa del Sol, frá Marbella og Estepona, til Sotogrande, Gibraltar og Cádiz héraðs.

  • 39 km
  • 5 km
  • 55 km
  • 2 km
  • 33 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Casares

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.