Einbýlishús í fremstu línu við golfvöll með 4 svefnherbergjum, sjávarútsýni, þakverönd og kjallara í Estepona

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona

frá 202,635,000 kr
frá 1.350.000€

4

3

685.93 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4910970

Nýr kjarni einstakra einbýlishúsa sem eru umkringd náttúrufegurð Sierra Bermeja fjallanna í miðju Estapona Golf resort. Þessi kjarni á Costa del Sol er innan 18 holu golfvallar með stórkostlegu klúbbhúsi, með golfverslun, bar og veitingastað.

Estepona er einungis í 15 mínútna fjarlægð með bíl og Marbella í 30 mínútna fjarlægð, en báðir bæirnir bjóða upp á mikla þjónustu og afþreyingu, með miklu úrvali veitingastaða og tækifæra til að njóta spænskrar menningar. Fyrir útvistarfólk eru mörg tækifæri til að stunda hinar ýmsu íþróttir, s.s. siglingar og veiði, göngu í fjöllunum, auk allra golfvallanna á svæðinu. Flugvöllurinn í Gíbraltar er í um 45 mínútna akstursfjarlægð og flugvöllurinn í Malaga er í um klukkustundarfjarlægð.

Kjarninn býður upp á einbýlishús með 3 eða 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, á tveimur hæðum auk þakverandar og kjallara. Öll húsin njóta mikils útsýnis yfir Miðjarðarhafið. Jarðhæðin er með mikilli lofthæð sem gerir stofuna einstaklega bjarta og glæsilega, eldhúsið og borðstofan er í sama rými. Húsin eru ekki öll eins en sum eru með glerþil á milli stofu og eldhúss. Úr rýminu er gengið út á verönd sem er yfirbyggð að hluta, út að sundlugarsvæðinu sem er með garði. Á jarðhæðinni er einnig gestasalerni.

Miðhæðin er með svefnherbergjunum. Öll herbergin, í húsunum sem eru með 3 svefnherbergjum, eru með baðherbergi inn af, og opnast út á svalir. Í húsunum með 4 svefnherbergjum eru tvö með baðherbergi inn af. Stigi leiðir svo út á þakverönd sem er yfir 100 m2 að stærð, og fullkomin til að njóta sólarinnar á Costa del Sol.

Kjallarinn er með nokkur rými, gestasalerni, tómstundaherbergi, geymslu/fjölnota rými og rými sem væri hægt að nýta sem bíósal, sauna, vínkjallara, líkamsrækt eða hvað sem er.

Húsin eru byggð með úrvals byggingarefnum og eru með fullbúið eldhús, loftkælingu, gólfhita, Smart kerfi, saltvatnssundlaug, tengi fyrir hitapumpu, útisturtu, fullhannaðan garð með grasi, plöntur og vökvunarkerfi. Það fylgja 2 bílastæði með hleðslustöð fyrir rafbíla.

Aukalega er hægt að fá heitan pott á þakveröndina og breyta kjallaranum í bílskúr, bíósal eða hvað sem er.

See more...

  • einkasundlaug
  • opin verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona

Einn mest heillandi staðurinn við Costa del Sol er bærinn Estepona. Staðsettur á milli Miðjarðarhafsins og frjósams dals með lækjum og fallegu grænu fjallanna í Sierra Bermeja. Svæðið nýtur milds Miðjarðarhafsloftslags, með árlegum meðalhita upp á 17º og næstum 300 sólríka daga á ári. Allt þetta gerir bæinn að einum mikilvægasta áfangastað ferðamanna og þeirra sem eiga sitt annað heimili á suðurströnd Spánar.

Estepona hefur það besta sem fjöllin og hafið hafa upp á að bjóða. Borgin og svæðið sem henni tengist, býður upp á 23 km af fallegum ströndum með alls kyns þjónustu sem tryggir öryggi og ánægju meðfram einni lengstu strandlengju Málaga héraðs. Estepona smábátahöfnin er uppáhaldsstaður þeirra sem leita að tómstundum og skemmtun á kvöldin, sérstaklega yfir  sumarmánuðina. Sierra Bermeja fjöllin eru tilvalið náttúrusvæði til að njóta alls kyns útivistar, svo sem gönguferða, hjólreiða eða fuglaskoðunar.

  • 41 km
  • 5 km
  • 54 km
  • 2 km
  • 32 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Estepona

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.