Þakíbúðir með þakverönd, 800m frá ströndinni í Estepona

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona

frá 62,741,800 kr
frá 418.000€

2

2

83.91 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5043342

Nýr íbúðarkjarni sem er einungis 800m frá ströndinni í Estepona. Kjarninn er staðsettur á vaxandi svæði, nálægt alls kyns þjónustu, eins og alþjóðlegum skólum, matvöruverslunum, spítala, og íþróttaleikvangi. Kjarninn er í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá gamla bænum í Estepona sem er talinn einn sá fallegasti í Andalúsíu og er þekktur sem “The Garden of Costa del Sol. Þá er höfnin í um 7 mínútna akstursfjarlægð. Fyrir golfara þá eru um 30 golfvellir á 20 km radíus, þar á meðal Azata Golf og Valle Romano. Kjarninn er vel tengdur vegakerfinu með tilstilli AP-7 hraðbrautarinnar og N340 þjóðvegarins, sem gerir það auðvelt að aka til Sotogrande á um 20 mínútum auk Marbella og Puerto Banus á 25 mínútum. Flugvöllurinn í Malaga er í um 50 mínútna fjarlægð og flugvöllurinn í Gíbraltar er í um 40 mínútna fjarlægð.

Kjarninn býður upp á íbúðir sem eru með 2 eða 3 svefnherbergjum, í tveimur lágreistum byggingum, og eru fáanlegar í mismunandi útgáfum; jarðhæðir með einkagarði, miðhæðir með verönd og þakíbúðir með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með opnu skipulagi og borðstofu sem opnast út á verönd. Hjónaherbergin eru öll með sér baðherbergi. Íbúðirnar njóta náttúrulegs ljóss þar sem þær snúa allar í suð-austur.

Íbúðirnar eru með fullbúnu eldhúsi, loftkælingu, dyrasíma í lit, geymslu og bílastæði. Möguleiki er að velja innréttingar ef komið er að kaupunum nægilega snemma í byggingaferlinu.

Sameiginlega svæðið er með stór græn svæði, sundlaug fyrir fullorðna og börn, sólbaðssvæði, líkamsrækt og tómstundaherbergi.

Þetta eru frábærar íbúðir með öllu sem fylgir Miðjarðarhafslífstílnum, í einu eftirsóttasta svæði Costa del Sol.

See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • þakverönd
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona

Einn mest heillandi staðurinn við Costa del Sol er bærinn Estepona. Staðsettur á milli Miðjarðarhafsins og frjósams dals með lækjum og fallegu grænu fjallanna í Sierra Bermeja. Svæðið nýtur milds Miðjarðarhafsloftslags, með árlegum meðalhita upp á 17º og næstum 300 sólríka daga á ári. Allt þetta gerir bæinn að einum mikilvægasta áfangastað ferðamanna og þeirra sem eiga sitt annað heimili á suðurströnd Spánar.

Estepona hefur það besta sem fjöllin og hafið hafa upp á að bjóða. Borgin og svæðið sem henni tengist, býður upp á 23 km af fallegum ströndum með alls kyns þjónustu sem tryggir öryggi og ánægju meðfram einni lengstu strandlengju Málaga héraðs. Estepona smábátahöfnin er uppáhaldsstaður þeirra sem leita að tómstundum og skemmtun á kvöldin, sérstaklega yfir  sumarmánuðina. Sierra Bermeja fjöllin eru tilvalið náttúrusvæði til að njóta alls kyns útivistar, svo sem gönguferða, hjólreiða eða fuglaskoðunar.

  • 40 km
  • 3 km
  • 53 km
  • 1 km
  • 31 km
  • 2 km

Nánari upplýsingar um Estepona

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.