Íbúðir með rúmgóðri verönd og sjávarútsýni í Estepona

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona

frá 49,232,800 kr
frá 328.000€

2

2

98.23 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5059467

Nýr kjarni með stórkostlegu sjávarútsýni í Estepona. Staðsettur nálægt Guadalmansa ánni og umkringdur golfvöllum og náttúrufegurð en eingöngu 10 mínútum frá frábærum ströndum. Kjarninn er nálægt allri helstu þjónustu, s.s. matvöruverslunum, apótekum, veitingastöðum, spítala, búðum og skólum. Selwo Aventura garðurinn er einungis í 10 mínútna fjarlægð. Kjarninn er vel tengdur vegakerfinu og er auðvelt og fljótlegt að komast til miðbæjar Estepona og Puerto Banús á 15 mínútum, auk Marbella á um 25 mínútum. Á flugvöllinn í Malaga er um 50 mínútna akstur. Kjörin staðsetning fyrir þá sem leita að orlofsíbúð eða heimili.

Kjarninn býður upp á einstakar íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, fáanlegar í mismunandi útgáfum; jarðhæðir með garði, miðhæðir með rúmgóðri verönd og þakíbúðir með þakverönd. Húsið er byggt á upphækkaðri lóð svo allar íbúðirnar njóta sjávarútsýnis og útsýnis til fjalla. Íbúðirnar eru bjartar og rúmgóðar með opnu skipulagi og stofu sem opnast út á verönd. Hjónaherbergin eru með baðherbergi innaf og í sumum íbúðunum eru útgangur út á svalir þaðan.

Þessar íbúðir eru byggðar af gæðum, þeim fylgir fullbúið eldhús, loftkæling, heitt vatn frá sólarsellum og rafmagnskynding, dyrasími og eitt bílastæði en sumum fylgja tvö bílastæði.

Sameiginlega svæðið er stórkostlegt, með stórum grænum svæðum og stígum sem eru hönnuð með hliðsjón af umhverfinu, sundlaugar fyrir börn og fullorðna auk Spa svæðis, með nuddsvæði, tyrknesku baði og saunu, sturtuklefum, salernum og sturtum.

See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona

Einn mest heillandi staðurinn við Costa del Sol er bærinn Estepona. Staðsettur á milli Miðjarðarhafsins og frjósams dals með lækjum og fallegu grænu fjallanna í Sierra Bermeja. Svæðið nýtur milds Miðjarðarhafsloftslags, með árlegum meðalhita upp á 17º og næstum 300 sólríka daga á ári. Allt þetta gerir bæinn að einum mikilvægasta áfangastað ferðamanna og þeirra sem eiga sitt annað heimili á suðurströnd Spánar.

Estepona hefur það besta sem fjöllin og hafið hafa upp á að bjóða. Borgin og svæðið sem henni tengist, býður upp á 23 km af fallegum ströndum með alls kyns þjónustu sem tryggir öryggi og ánægju meðfram einni lengstu strandlengju Málaga héraðs. Estepona smábátahöfnin er uppáhaldsstaður þeirra sem leita að tómstundum og skemmtun á kvöldin, sérstaklega yfir  sumarmánuðina. Sierra Bermeja fjöllin eru tilvalið náttúrusvæði til að njóta alls kyns útivistar, svo sem gönguferða, hjólreiða eða fuglaskoðunar.

  • 70 km
  • 10 km
  • 41 km
  • 3 km
  • 18 km
  • 0 km

Nánari upplýsingar um Estepona

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.