Íbúðir með 3 svefnherbergjum, 800m frá ströndinni í Estepona

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona

frá 40,677,100 kr
frá 271.000€

3

2

97.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5104076

Nýr íbúðakjarni með nútímalegum íbúðum sem eru 800m frá ströndinni í Estepona. Vel staðsettar í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá allri þjónustu, s.s. matvöruverslunum, búðum, heilsugæslu, veitingastöðum og börum. Golfvellir eru allt um kring og nokkrar mínútur eru niður á strönd, sem gerir svæðið kjörið fyrir golfara og áhugafólk um vatnasport og útiveru. Strandlengjan í Estepona er um 20 km á milli Puerto Banús og Sotogrande, sem eru tvær mikilvægustu hafnirnar á Costa del Sol. Kjarninn er vel tengdur vegakerfinu og gera AP7 og A7 hraðbrautirnar það mögulegt að komast auðveldlega á milli staða, eins og til Marbella og Puerto Banús á 25 mínútum, til Algeciras á 35 mínútum og til Fuengirola á 50 mínútum. Flugvöllurinn í Malaga er í um klukkustundarfjarlægð og flugvöllurinn á Gíbraltar er í um 45 mínútna fjarlægð.  

Nútímalegar íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum, í byggingum sem eru 3 hæðir hver. Það fer eftir staðsetningu en íbúðirnar njóta ýmist útsýnis yfir sundlaugina, græn svæði sameignarinnar, fjöllin eða Miðjarðarhafið.

Allar íbúðirnar eru með fullbúnu eldhúsi, loftkælingu sem bæði hitar og kælir, fullbúin baðherbergi, hitaeinangrandi gluggafleka í svefnherbergjum, dyrasíma í lit, bílakjallara og geymslu.

Kjarninn er með góð sameiginleg svæði fyrir íbúana, s.s. stóra sundlaug, rúmgóð græn svæði með pálmatrjám, sítrustrjám og fleiri plöntum, líkamsræktarsal, úti-svæði fyrir hugleiðslu/Tai-Chi/jóga, Spa, sameiginlegt vinnuherbergi, strandblakvöll, hlaupabraut, leiksvæði og púttvöll.

See more...

  • verönd
  • bílageymsla í kjallara
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona

Einn mest heillandi staðurinn við Costa del Sol er bærinn Estepona. Staðsettur á milli Miðjarðarhafsins og frjósams dals með lækjum og fallegu grænu fjallanna í Sierra Bermeja. Svæðið nýtur milds Miðjarðarhafsloftslags, með árlegum meðalhita upp á 17º og næstum 300 sólríka daga á ári. Allt þetta gerir bæinn að einum mikilvægasta áfangastað ferðamanna og þeirra sem eiga sitt annað heimili á suðurströnd Spánar.

Estepona hefur það besta sem fjöllin og hafið hafa upp á að bjóða. Borgin og svæðið sem henni tengist, býður upp á 23 km af fallegum ströndum með alls kyns þjónustu sem tryggir öryggi og ánægju meðfram einni lengstu strandlengju Málaga héraðs. Estepona smábátahöfnin er uppáhaldsstaður þeirra sem leita að tómstundum og skemmtun á kvöldin, sérstaklega yfir  sumarmánuðina. Sierra Bermeja fjöllin eru tilvalið náttúrusvæði til að njóta alls kyns útivistar, svo sem gönguferða, hjólreiða eða fuglaskoðunar.

  • 39 km
  • 5 km
  • 55 km
  • 1 km
  • 32 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Estepona

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.