Risíbúðir með 3 svefnherbergjum, útsýni yfir hafið og einkasundlaug í Fuengirola

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

frá 172,845,000 kr
frá 1.150.000€

3

2

110.80 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4638696

Einstakar íbúðir í afgirtu hverfi nálægt Fuengirola, á Costa del Sol. Framúrskarandi staðsetning í fallegri náttúru með vel hirtum görðum, í aðeins fimm mínútna fjarlægð frá ströndinni. Staðsetningin gefur kost á stórkostlegu útsýni yfir Miðjarðarhafið og alla mögulega þjónustu er að finna í borginni Fuengirola, í aðeins tíu mínútna fjarlægð frá byggðinni. Fleiri mikilvægar borgir á þessu svæði, eins og Benalmádena og Málaga, eru í aðeins 20 og 25 mínútna fjarlægð.  

Í boði eru lúxusíbúðir með 2 og 3 svefnherbergjum, í mismunandi stærðum og gerðum: neðri hæðir, miðhæðir og risíbúðir. Flestar eru íbúðirnar með einkasundlaug á verönd og allar bjóða þær upp á margvíslega notkun á rými, mögulegt er að útbúa opin rými eða aðskilja þau eftir hentisemi og stíl. Mjög bjartar íbúðir, með stórum gluggum svo hægt er að njóta fallegs útsýnis. Eitt svefnherbergi er með sérbaðherbergi og baðkari. 

Íbúðirnar eru allar hannaðar af kostgæfni, í framúrstefnustíl, nýstárlegar og úr hágæða sjálfbæru efni, eins og stál, stein og við. Allar íbúðirnar eru með full útbúið eldhús með heimilistækjum, hljóð- og hitaeinangrandi TECHNAL-gluggum, hita- og loftkælingu, gólfhita í baðherbergjum og einu svefnherbergi eða í allri íbúðinni, snjallkerfi og tveimur bílastæðum með hleðslustöð fyrir rafbíla.

Byggðin hefur upp á bjóða úrval sameiginlegra tómstundasvæða fyrir samfélagið, bera þar hæst sundlaug fyrir alla aldurshópa, víðfeðma garða með Miðjarðarhafsgróðri, matjurtagörðum og ávaxtatrjám, gönguleiðir, svæði fyrir nestisferðir og grill, gæludýragerði, útiheilsurækt, gufubað, svið fyrir viðburði, útibíó og samvinnusali. Að auki munu eigendur fá áskrift að einstökum siglingaklúbbi, heilsulind og strandarklúbbi. Samfélagið er einnig með húsvarðarþjónustu sem býður upp á að ganga frá kröfum og öðru umstangi með snjallforriti.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • bílastæði
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

Fuengirola er borg sem angar af Andalúsíu og býður uppá víðfeðma strandlengju sem skreytt er stórkostlegum ströndum. Þessi borg í Málaga héraði hefur um langt skeið verið eftirsóttur ferðamannastaður og býður uppá fjölbreytt úrval þjónustu og innviða, svo sem golfvelli, hestabúgarða, skemmtigarða, hótel og veitingastaði, svo ekki sé minnst á menningarhefðir og hátíðir. Menningarlegir viðburðir í Fuengirola, ásamt vinsælum hátíðahöldum, teygja sig yfir árið eins og það leggur sig og endurspegla opið og alúðlegt viðmót innfæddra.  

Íbúafjöldi í borginni er um 80.000 manns, sem gerir hana að fimmta fjölmennasta sveitarfélagi Málaga, á eftir höfuðborginni sjálfri, Marbella, Vélez-Málaga og Mijas.

Fuengirola var stofnuð af Föníkumönnum og um hana fóru Rómverjar, Býsantíumenn, Vestgotar og Múslímar ásamt öðrum þjóðum, þar til hún var opinberlega innlimuð í konungsríki Kastilíu, árið 1485. Í dag er Fuengirola mikilvægur ferðamannastaður sem hýsir um 250.000 manns yfir sumartímann og hagkerfi borgarinnar veltur á ferðamannaþjónustu. 

  • 19 km
  • 5 km
  • 5 km
  • 1 km
  • 4 km
  • 4 km

Nánari upplýsingar um Fuengirola

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.