Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola
Þessi eign er ekki í boði
REF 4688530
Lúxuseign á upphækkuðu svæði í Mijas Costa, tíu mínútur frá Fuengirola og einungis 5 mínútur frá ströndinni. Eignin tilheyrir lokuðum dvalarstað sem fylgir aðgangur að fyrsta flokks þjónustu og aðstöðu, eins og dyravörslu, íþróttaklúbbi, afslöppun í spa eða á strandarklúbbnum. Bærinn Mijas Costa hefur að geyma ýmis konar úrval veitingastaða, við ströndina sjálfa og einnig inn í miðbænum, en þetta er dæmigert þorp sem býr enn yfir töfrum hvítu þorpanna í Andalúsíu. Staðsetningin er fullkomin fyrir unnendur golfs, en einnig iðkun annarra íþrótta, mikið úrval hasaríþrótta er á staðnum, eins og svifflug, en einnig allskonar vatnaíþróttir. Húsið er á rólegum stað, en auðvelt er að komast að því því það er vel tengt hraðbrautinni, svo unnt er að komast hratt og örugglega til annarra mikilvægra borga eins og Puerto Banús og Marbella á hálftíma og á flugvöllinn í Malaga á einungis 20 mínútum.
Í boði er lúxuseinbýli með nútímahönnun á 1179 m2 lóð, sem hægt er að flytja strax inn í. Húsið er á þremur hæðum, með fjórum svefnherbergjum og þremur baðherbergjum. Lyfta tengir saman hæðirnar þrjár.
Á jarðhæð er opið, rúmgott rými með stofu, borðstofu og eldhúsi og stórum gluggum þaðan sem útgengt er í garðinn. Hér ber helst að nefna rúmgóðar svalir og dásamlega sundlaug. Á þessari hæð er einnig gestasalerni.
Stærsta svefnherbergið nær yfir alla miðhæðina, þar er stórt fataherbergi, baðherbergi með baði og sturtu og yfirbyggðum svölum með útsýni yfir garðinn.
Á neðstu hæð eða kjallara eru hin þrjú svefnherbergin, tvö baðherbergi, þvottahús, gufubað og tvö rými sem hægt er að hann eftir eigin höfði. Til dæmis er hægt að útbúa annað svefnherbergi og leikja- eða íþróttasal eða hvað sem hugurinn girnist. Á þessari hæð er útgengt út á verönd og í garðinn.
Eignin er byggð úr fyrsta flokks efni, eldhúsið er fullbúið með hágæða heimilistækjum, loftvarmakerfi, hita í gólfum, loftræstingu um stokk (hiti/kuldi), snjallkerfi, nuddpotti, Otis-lyftu, 27 m2 einkasundlaug, útisalerni og bílskúr fyrir tvö ökutæki.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola
Fuengirola er borg sem angar af Andalúsíu og býður uppá víðfeðma strandlengju sem skreytt er stórkostlegum ströndum. Þessi borg í Málaga héraði hefur um langt skeið verið eftirsóttur ferðamannastaður og býður uppá fjölbreytt úrval þjónustu og innviða, svo sem golfvelli, hestabúgarða, skemmtigarða, hótel og veitingastaði, svo ekki sé minnst á menningarhefðir og hátíðir. Menningarlegir viðburðir í Fuengirola, ásamt vinsælum hátíðahöldum, teygja sig yfir árið eins og það leggur sig og endurspegla opið og alúðlegt viðmót innfæddra.
Íbúafjöldi í borginni er um 80.000 manns, sem gerir hana að fimmta fjölmennasta sveitarfélagi Málaga, á eftir höfuðborginni sjálfri, Marbella, Vélez-Málaga og Mijas.
Fuengirola var stofnuð af Föníkumönnum og um hana fóru Rómverjar, Býsantíumenn, Vestgotar og Múslímar ásamt öðrum þjóðum, þar til hún var opinberlega innlimuð í konungsríki Kastilíu, árið 1485. Í dag er Fuengirola mikilvægur ferðamannastaður sem hýsir um 250.000 manns yfir sumartímann og hagkerfi borgarinnar veltur á ferðamannaþjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum