Íbúðir með sjávarútsýni, 500 m frá ströndinni í Fuengirola

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

frá 79,252,800 kr
frá 528.000€

2

2

115.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4791507

Nýr íbúðakjarni með sjávarútsýni, einungis 500 m frá ströndinni í Fuengirola. Einstök staðsetning á Costa del Sol,í  einungis 10 mínútna fjarlægð frá miðbænum í Fuengirola og 20 mínútum frá Benalmádena, með alla þjónustu við hendina, s.s. veitingastaði, bari, matvöruverslanir, búðir, banka, heilsugæslu, fjölda golfvalla, verslunarmiðstöðvar og alls kyns afþreyingu. Kjarninn er vel tengdur við vegakerfið  sem gerir það einfalt að aka til Malaga á 30 mínútum og á flugvöllinn í Malaga á einungis 15 mínútum.

Kjarninn býður upp á íbúðir sem eru með 2 eða 3 svefnherbergjum, í mismunandi útgáfum; jarðhæðir með einkagarði, miðhæðir með stórri verönd og þakíbúðir með eða án þakverandar. Allar íbúðirnar eru með eldhús, stofuna og borðstofuna í einu opnu rými sem opnast út á verönd þar sem stórkostlegt útsýni blasir við. Hjónasvíturnar í íbúðunum eru með baðherbergi inn af og er aðgengi út á verönd frá þeim.

Allar íbúðirnar eru byggðar úr úrvals byggingarefnum og eru með fullbúið eldhús, for-útbúna loftkælingu sem bæði hitar og kælir, gólfhita, 2 bílastæði og geymslu. Þakíbúðirnar sem eru með þakverönd eru með útisturtum, tengi fyrir heitan pott, geymslu, útieldhús, grillsvæði og tengi fyrir lítinn ísskáp.

Ef kaupin eru gerð nægilega snemma er hægt að hafa áhrif á hönnun íbúðarinnar, s.s. efnisval og herbergjaskipan.

Kjarninn býður upp á ýmis sameiginleg svæði. Þar á meðal er upphituð sundlaug, heitur pottur, barnalaug, afslöppunarsvæði með grasi, útisturtur, salerni, sólbekkir og sólhlífar, fullbúin líkamsrækt og vinnusvæði með net tengingu. Þá er 127 m2 útsýnissvæði með garði og göngustígum. Byggingin sjálf er með sólar panel sem auka á sjálfbærni og draga úr orkukostnaði fyrir húseignina í heild.

See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

Fuengirola er borg sem angar af Andalúsíu og býður uppá víðfeðma strandlengju sem skreytt er stórkostlegum ströndum. Þessi borg í Málaga héraði hefur um langt skeið verið eftirsóttur ferðamannastaður og býður uppá fjölbreytt úrval þjónustu og innviða, svo sem golfvelli, hestabúgarða, skemmtigarða, hótel og veitingastaði, svo ekki sé minnst á menningarhefðir og hátíðir. Menningarlegir viðburðir í Fuengirola, ásamt vinsælum hátíðahöldum, teygja sig yfir árið eins og það leggur sig og endurspegla opið og alúðlegt viðmót innfæddra.  

Íbúafjöldi í borginni er um 80.000 manns, sem gerir hana að fimmta fjölmennasta sveitarfélagi Málaga, á eftir höfuðborginni sjálfri, Marbella, Vélez-Málaga og Mijas.

Fuengirola var stofnuð af Föníkumönnum og um hana fóru Rómverjar, Býsantíumenn, Vestgotar og Múslímar ásamt öðrum þjóðum, þar til hún var opinberlega innlimuð í konungsríki Kastilíu, árið 1485. Í dag er Fuengirola mikilvægur ferðamannastaður sem hýsir um 250.000 manns yfir sumartímann og hagkerfi borgarinnar veltur á ferðamannaþjónustu. 

  • 19 km
  • 4 km
  • 4 km
  • 1 km
  • 4 km
  • 4 km

Nánari upplýsingar um Fuengirola

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.