Íbúðir með einu svefnherbergi, 700m frá höfninni í Fuengirola

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

frá 40,827,200 kr
frá 272.000€

1

1

74.22 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5018522

Nýr kjarni einstakra íbúða í hjarta Fuengirola, einungis 700m frá höfninni. Verið er að fara að endgurgera höfnina en það mun án efa hækka verðgildi eigna á svæðinu sem gerir þetta að frábærum fjárfestingakosti. Frábær staðsetning nálægt allri helstu þjónustu, með miklu úrvali afþreyingar og matsölustaða, og eingöngu í um 10 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni. Kjarninn er vel tengdur innan vegakerfisins og er er fljótlegt að komast á mili staða á Costa del Sol, eins og til Cala de Mijas á 15 mínútum, Torremolinos á 20 mínútum og annarra borga Marbella á hálftíma. Flugvöllurinn í Malaga er í um 20 mínútna fjarlægð og til lestarstöðvarinnar í Fuengirola er um 10 mínútna ganga.

Nútímalega hönnuð bygging með íbúðum sem eru með 1, 2 eða 3 svefnherbergjum og þakíbúðar á 2 hæðum með 3 svefnherbergjum. Rúmgóðar íbúðir með opnu skipulagi og stofu sem opnast út á verönd. Hjónaherbergin eru öll með baðherbergi innaf. Sumar íbúðir eru með herbergi sem eru með aðgengi út á verönd.

Íbúðirnar eru með nútímalegasta búnaðinn og bestu gæðin sem eru fáanleg á markaðnum! Þar á meðal eldhús með vönduðum eldhústækjum, loftkælingu sem bæði hitar og kælir, myndavéladyrasíma og fullbúin baðherbergi. Aukalega er hægt að kaupa geymslu og bílastæði.

Kjarninn er með ýmis sameiginleg svæði til að njóta og slaka á, svo sem “infinity” sundlaug fyrir fullorðna, grænan garð með plöntum frá Miðjarðarhafinu sem tryggir litla vatnsnotkun, fullbúna líkamsrækt, salerni, búningsklefa, sturtu og spa með saunu  og hitaðri innilaug.

Byggingin verður BREEAM® vottuð, sem tryggir sjálfbærni og umhverfisvottun.

 

See more...

  • verönd
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

Fuengirola er borg sem angar af Andalúsíu og býður uppá víðfeðma strandlengju sem skreytt er stórkostlegum ströndum. Þessi borg í Málaga héraði hefur um langt skeið verið eftirsóttur ferðamannastaður og býður uppá fjölbreytt úrval þjónustu og innviða, svo sem golfvelli, hestabúgarða, skemmtigarða, hótel og veitingastaði, svo ekki sé minnst á menningarhefðir og hátíðir. Menningarlegir viðburðir í Fuengirola, ásamt vinsælum hátíðahöldum, teygja sig yfir árið eins og það leggur sig og endurspegla opið og alúðlegt viðmót innfæddra.  

Íbúafjöldi í borginni er um 80.000 manns, sem gerir hana að fimmta fjölmennasta sveitarfélagi Málaga, á eftir höfuðborginni sjálfri, Marbella, Vélez-Málaga og Mijas.

Fuengirola var stofnuð af Föníkumönnum og um hana fóru Rómverjar, Býsantíumenn, Vestgotar og Múslímar ásamt öðrum þjóðum, þar til hún var opinberlega innlimuð í konungsríki Kastilíu, árið 1485. Í dag er Fuengirola mikilvægur ferðamannastaður sem hýsir um 250.000 manns yfir sumartímann og hagkerfi borgarinnar veltur á ferðamannaþjónustu. 

  • 23 km
  • 1 km
  • 0 km
  • 1 km
  • 0 km
  • 4 km

Nánari upplýsingar um Fuengirola

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.