Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Manilva
Þessi eign er ekki í boði
REF 4028730
Glæsilegur íbúðakjarni í Manilva, við Costa del Sol. Kjarninn er byggður á upphækkuðu svæði og flestar íbúðirnar njóta ótrúlegs sjávarútsýnis. Frábær staðsetning, aðeins 5 mínútur frá Sotogrande, 10 mínútur frá sögulegum miðbæ Estepona og 20 mínútur frá iðandi svæði Puerto Banús í Marbella. Á svæðinu er frábært vegakerfi, Alþjóðaflugvöllurinn í Gíbraltar er í aðeins 30 mínútna fjarlægð með bíl og kjarninn er innan við klukkutíma frá Málaga flugvelli.
Íbúðir fáanlegar með 2 og 3 svefnherbergjum af mismunandi gerðum. Allar íbúðirnar eru með stórri verönd, opinni stofu, eldhúsi með eldhústækjum og snjall heimiliskerfi. Þakíbúðir eru enn fremur með þakverönd.
Sameiginleg svæði kjarnans eru dæmigerð fyrir orlofsdvalarstað, með stórri útsýnislaug með snakkbar og útsýni yfir Miðjarðarhafið. Önnur aðstaða er meðal annars vinnusvæði með WIFI, kvikmyndasalur með þægilegum sætum og félagsklúbbur með sjálfsafgreiðslubar, tilvalinn fyrir einkaveislur. Líkamsræktin er búin nýjustu tækjum, herbergi til að æfa jóga og/eða pílates, og paddle- og tennisvellir eru í boði líka. Glæsilegt útisvæði samanstendur af stórri barnalaug, sundlaug og leikvelli, ásamt stórbrotnum görðum og nokkrum grillsvæðum, auk bílastæða.
Þá er skutlþjónusta á ströndina og rafmagnsreiðhjól á staðnum sem íbúar geta nýtt sér.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Manilva
Manilva er ferðamannabær við vestur Costa del Sol, mjög nærri mörkum Cádiz héraðs sem liggur 97 km frá höfuðborg Málaga og 35 km frá Gíbraltar. Frjósemi á svæðinu og landfræðileg staðsetning þess hafði mikið aðdráttarafl fyrir fornar þjóðir sem setjast vildu þar að og gerðu þannig Manilva að byggð allt frá forsögulegum tíma.
Landslagið á svæðinu einkennist af hæðum sem stíga í áföngum upp frá hafinu inní landið og gerir fólki kleift að njóta þess að ferðast bæði um græn svæði og við ströndina. Íbúafjöldi er yfir 15.000 í dag og dreifist um þrjú þéttbýlissvæði; Manilva, Sabinillas og El Castillo auk fjölda íbúðahverfa.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum