Lúxus einbýlishús með 5 svefnherbergjum, kjallara og stórkostlegu sjávarútsýni í Manilva

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Manilva

frá 413,325,000 kr
frá 2.750.000€

5

6

535.00 m2

1400.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4965107

Einstakt einbýlishús með stórkostlegu sjávarútsýni í Manilva, borg sem er á milli hérðanna Cadiz og Malaga. Borgin býður upp á mjög gott úrval daglegra nauðsynja, og veitingastaða, sem og úrval afþreyingar og menningar viðburða. Fyrir útvistarfólk eru fjöldi golfvalla í nágrenninu, s.s. Doña Julia og Real Club de Valderrama, auk hafnarsvæða eins og La Duquesa og Sotogrande, sem eru stuttri akstursfjarlægð frá húsinu. Þá eru frábærar hvítar strendur stutt frá. A-7 hraðbautin gerir það að verkum að auðvelt er að aka um svæðið, meðfram Costa del Sol ströndinni, og til Malaga og flugvallarins en það tekur einungis  klukkustund að aka að þeim flugvelli og um 35 mínútur til flugvallarins í Gíbraltar.

Nútímalegt einbýlishús á 2 hæðum auk kjallara, með 5 svefnherbergjum og 6 baðherbergjum, byggt á 1.400 m2 lóð. Stórkostlegt útsýni er frá húsinu sem teygir sig frá Marbella til Gíbraltar. Stofan er rúmgóð með opnu skipulagi og eldhúsið er með eyju. Stórir gluggarnir í stofunni opnast út á glæsilega 150 m2 verönd, með tveimur aðskildum íveru svæðum, “infinity” sundlaug og heitum potti. Á hæðinni er tvöfalt svefnherbergi og baðherbergi. Hin herbergin eru á 2. hæð hússins, hvert með eigið baðherbergi og aðgengi út á svalir með stórkostlegu útsýni. Á þessari hæð er inngangurinn í húsið, með yfirbyggða pergólu yfir bílastæðinu. Stór kjallarinn er fjölnota og opnast út í fullbúinn garð. Aukalega er hægt að breyta kjallaranum í íbúð, tómstundaherbergi, bíósal, líkamsrækt, vínkjallara eða hvað sem er.

Húsið verður byggt með úrvals byggingarefnum, ítölskum steini á framhliðum, fullbúinni loftkælingu sem bæði hitar og kælir, og loftræstingu með sólarsellur, Smart Home kerfi, “infinity” sundlaug og heitum potti, fullbúinn garð með innbyggðu vökunarkerfi, geymslu, rafstýrðum hliðum og bílastæði fyrir 2 bíla.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Manilva

Manilva er ferðamannabær við vestur Costa del Sol, mjög nærri mörkum Cádiz héraðs sem liggur 97 km frá höfuðborg Málaga og 35 km frá Gíbraltar. Frjósemi á svæðinu og landfræðileg staðsetning þess hafði mikið aðdráttarafl fyrir fornar þjóðir sem setjast vildu þar að og gerðu þannig Manilva að byggð allt frá forsögulegum tíma. 

Landslagið á svæðinu einkennist af hæðum sem stíga í áföngum upp frá hafinu inní landið og gerir fólki kleift að njóta þess að ferðast bæði um græn svæði og við ströndina. Íbúafjöldi er yfir 15.000 í dag og dreifist um þrjú þéttbýlissvæði; Manilva, Sabinillas og El Castillo auk fjölda íbúðahverfa. 

  • 82 km
  • 4 km
  • 61 km
  • 0 km
  • 43 km
  • 33 km

Nánari upplýsingar um Manilva

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.