Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella, Marbella (Other areas)
REF 3905173
Flottur íbúðakjarni í Altos de los Monteros, rólegu og skógi vöxnu svæði, aðeins 10 mínútur frá Marbella. Kjarninn er vel tengdur um vegakerfi og finna má níu golfvelli í 15 km radíus, auk Marbella sjúkrahússins og hinnar þekktu La Cañada verslanamiðstöðvar. Malaga flugvöllur er í aðeins 30 mínútna akstursfjarlægð.
Kjarninn býður upp á einstakar íbúðir, með 2 eða 3 svefnherbergjum, af ýmsum gerðum. Vegna staðsetningar kjarnans njóta flestar eignanna einstaks sjávarútsýnis. Gæðafrágangur og fullbúið eldhús með eldhústækjum. Hverri íbúð fylgir einnig einfalt snjallkerfi, bílastæði og geymsla.
Sameiginlegt svæði hefur stórkostlega útsýnissundlaug, garða, líkamsræktaraðstöðu með útiverönd og fjölnota herbergi fyrir afþreyingu.Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella, Marbella (Other areas)
Marbella er í sjálfu sér einn helsti áfangastaðurinn við Costa del Sol. Frábært loftslag, strendur, náttúra og glæsilegar íþróttamiðstöðvar, eru aðeins lítið brot af því sem bærinn býður uppá.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum