Íbúðir í fremstu línu við golfvöll með 4 svefnherbergjum, garði og sundlaug í Marbella

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella

frá 193,629,000 kr
frá 1.290.000€

4

4

239.81 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5109489

Nýr íbúðakjarni með einstökum íbúðum í fremstu línu við golfvöll, 10 mínútum frá miðbæ Marbella. Staðsettur á rólegum stað umkringdur náttúru og einungis í nokkurra mínútna fjarlægð frá ströndinni. Svæðið býður upp á það besta sem Costa del Sol hefur upp á að bjóða, golfvelli, sportklúbba, blue flag strendur, alþjóðlega skóla, heilsugæslur, bari, veitingastaði, hafnir, strandklúbba og fjöldann allan af verslunarmiðstöðvum. Kjarninn er vel tengdur vegakerfinu í gegnum AP-7 og A-7 hraðbrautirnar sem gera það að verkum að auðvelt er að komast til Puerto Banús á 15 mínútum, til Fuengirola á 30 mínútum og til Estepona á 35 mínútum. Alþjóðaflugvöllurinn í Malaga er í um 35 mínútna fjarlægð og flugvöllurinn í Gíbraltar er í um klukkustundarfjarlægð. Kjörin staðsetning til að njóta Miðjarðarhafslífstílsins á Costa del Sol.

Kjarninn býður upp, á nútímalegar íbúðir með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, eða 4 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum sem eru fáanlegar sem jarðhæðir með verönd, stórum garði og kjallara eða sem þakíbúðir með verönd/svölum og þakverönd. Allar íbúðirnar eru með eigin saltvatnslaug í garðinum eða á þakveröndinni. Stofan er opin og sameinar eldhúsið og borðstofuna með aðgengi út á verönd. Bjartar íbúðir með stórum gluggum sem hleypa miklu náttúrulegu ljósi inn, allan daginn. Hjónaherbergin eru með eigin verönd og baðherbergi.

Öllum íbúðunum fylgja borðplötur úr steini og innbygð eldhústæki, LED lýsing, loftkæling sem bæði hitar og kælir, gólfhiti, Bluetooth hátálarar í eldhúsinu og hjónaherberginu, gestasalerni og tvö bílastæði með hleðslubúnað fyrir rafbíla í sameiginlegum bílakjallara. Garðurinn með íbúðunum á jarðhæð er með alvöru grasi og tengi fyrir vökvunarbúnað en þakíbúðirnar eru  með pergólu og geymslu á þakinu. Hægt er að breyta innréttingum og öðru ef komið er nægilega snemma að kaupunum.

Kjarninn er alveg lokaður og býður upp á mörg sameiginleg svæði, eins og tvær stórar saltvatnslaugar með sólbaðsaðstöðu með alvöru grasi, saunu, líkamsrækt og innisundlaug.

See more...

  • einkasundlaug
  • opin verönd
  • eigin garður
  • bílageymsla í kjallara
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella

Marbella er í sjálfu sér einn helsti áfangastaðurinn við Costa del Sol. Frábært loftslag, strendur, náttúra og glæsilegar íþróttamiðstöðvar, eru aðeins lítið brot af því sem bærinn býður uppá. 

Með yfir 147.000 íbúa, er Marbella önnur stærsta borg Málaga héraðs. Auk þess er bærinn ein mikilvægasta ferðamannaborg Costa del Sol og Spánar í heild sinni ef því er að skipta.  

  • 47 km
  • 4 km
  • 19 km
  • 1 km
  • 0 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Marbella

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.