Íbúðir með 3 svefnherbergjum í San Pedro de Alcantara, Marbella

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella, San Pedro de Alcántara

frá 106,495,950 kr
frá 709.500€

3

2

113.27 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5266781

Nútímaleg heimili í lokuðu samfélagi, staðsett mjög nálægt miðbæ San Pedro de Alcantara, í Marbella. Eitt af einkareknu svæðunum á Costa del Sol, með fullt af golfvöllum, verslunarsvæðum, veitingastöðum, börum og afþreyingarmöguleikum, margir þeirra í göngufæri. Aðeins í 15 mínútna göngufjarlægð frá strönd og í 3 mínútna akstursfjarlægð, þar sem boðið er upp á alls kyns vatnaíþróttir. Kjarninn er verl tengdur vegakerfinu með AP-7 og A-7 (N-340) hraðbrautirnar innan seilingar. Um 10 mínútur eru til Puerto Banus, 20 mínútur til Marbella og 40 mínútur til Malaga flugvallar.

Kjarninn inniheldur einstakar íbúðir með 2, 3 eða 4 svefnherbergjum og þakíbúðir með 3 eða 4 svefnherbergjum, allar með stórum veröndum. Björt heimili með opnu dagrými sem sameinar eldhús, borðstofu og stofu í stóru rými með útgengi út á verönd. Skipulagið er fullkomið til að njóta dásamlegs loftslagsins á Costa del Sol og innisvæðið tengist vel við útsvæðið sem gerir eignina stærri og býður upp á betri nýtingu. Hjónaherbergið er með sér baðherbergi og í sumum íbúðum er einnig útgengi út á verönd þaðan.

Eignirnar eru byggðar í mjög háum gæðaflokki með hágæða frágangi, þar á meðal fullbúinn loftkælingu með varmadælu, tvöföldum hitahljóðglerjum, innbyggðum fataskápum, myndbandssímkerfi og að minnsta kosti eitt bílastæði og geymslu.

Kjarninn býður upp á öryggiseftirlit allan sólarhringinn. Nokkur sameiginleg svæði eru í kjarnanum og eru þau með ókeypis þráðlausu interneti sem eru góð til að vinna í, sem frábært að slaka á. Fallegir stórir garðar, tvær útisundlaugar með saltvatni, ein fyrir fullorðna og ein fyrir börn, upphituð innilaug, heilsulind, líkamsræktarstöð og vinnurými.

See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella, San Pedro de Alcántara

San Pedro de Alcántara er bær í Marbella í Málaga héraði. Nafnið nær líka yfir íbúðahverfi og þéttbýliskjarna innan svæðisins. Bærinn er í vesturhluta Marbella og liggur að Estepona og Benahavís til vesturs, Benahavís til norðurs og til austurs um ánna Guadaiza að Nýju Andalúsíu. 

Í bænum er breið strandgata rétt við hafið sem mælist um 3.5 km og tengist Puerto Banús (Nýju Andalúsíu) og borginni Marbella. 

San Pedro de Alcántara býr einnig að mikilvægri menningarlegri og sögulegri arfleifð, með áhugaverðum eignum eins og Torre de las Bóvedas turninum, La Basílica Vega de Mar kirkjunni og rómversku böðunum.

  • 61 km
  • 3 km
  • 34 km
  • 1 km
  • 11 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um San Pedro de Alcántara

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.