TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR! Þakíbúð með þakverönd og útsýni til hafs í Cala de Mijas

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

Þessi eign er ekki í boði


2

2

70.34 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4174327

Glæsileg íbúðasamstæða, aðeins 5 mínútur frá La Cala de Mijas í Málaga. Á þessu svæði við Costa del Sol hefur tekist að sameina sjarma hinna dæmigerðu hefðbundnu Andalúsíuþorpa og alla nauðsynlega þjónustu fyrir lífsstíl nútímans. Það er mikið úrval af golfvöllum á svæðinu og stórkostlegar strendur eru í aðeins 10 mínútna fjarlægð. Önnur mikilvæg þjónusta, eins og sjúkrahús, íþróttamiðstöðvar og nokkrir af bestu veitingastöðum Costa del Sol eru einnig nálægt. Góð tenging er við önnur mikilvæg svæði í héraðinu, með Marbella í aðeins 20 mínútna fjarlægð með bíl og 30 mínútur til Málaga, sem og flugvallarins.

Þakíbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum, allar með þakverönd sem býður upp á stórbrotið sjávarútsýni. Íbúðirnar bjóða upp á rúmgóða opna stofu, borðstofu og eldhús en alrýmið opnast út á glæsilega verönd og víðáttumikið útsýni. Íbúðir með 3 svefnherbergjum hafa litla einkasundlaug á veröndinni og gegn aukagjaldi er hægt að bæta við sumareldhúsi og/eða arni til að auka upplifunina utandyra á hvaða tíma ársins sem er.

Eignirnar eru byggðar með gæðaefnum og þeim fylgja aukahlutir eins og loftkæling með hitastillum fyrir hvert rými fyrir sig, gólfhiti í allri íbúðinni, eldhústæki, geymsla og tvö bílastæði.

Kjarninn er lokaður og býður upp á 24 klst. öryggiseftirlit og glæsilegt sameiginlegt svæði er til staðar, með stórum görðum og stórkostlegri aðstöðu en þar eru þrjár saltvatnslaugar; útsýnislaug með frábæru útsýni, ein með sundlaugarbar og upphituð innisundlaug. Önnur aðstaða er meðal annars líkamsræktarstöð, golfhermir, leikvöllur fyrir börn, kvikmyndahús, bodega, gastro-bar og vinnurými, með fundaaðstöðu. Hver íbúi mun hafa aðgang að sérútbúnu farsímaforriti með mörgum aðgerðum en þar á meðal má panta einhverja sameiginlega aðstöðu. Skutlþjónusta er í boði fyrir íbúa, milli kjarnans og Cala de Mijas.
See more...

  • verönd
  • þakverönd
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
  • sameiginleg bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina. 

Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi. 

  • 37 km
  • 4 km
  • 9 km
  • 3 km
  • 9 km
  • 0 km

Nánari upplýsingar um Mijas Costa

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.