Þakíbúðir með sjávarútsýni og þakverönd í Mijas Costa

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

frá 96,814,500 kr
frá 645.000€

2

2

85.15 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4870443

Nýr íbúðakjarni með nútímalegum íbúðum í Mijas Costa. Kjarninn er nálægt einum besta golfvelli svæðisins og er einungis í 10 mínútna akstursfjarlægð frá La Cala de Mijas og Calahonda, sem bjóða alla nauðsynlega þjónustu eins og verslunarmiðstöðvar, matvöruverslanir, heilsugæslu, banka og veitingastaði, sem og fallegar strendur. Staðsetningin er frábær fyrir golfara en einnig fyrir íþróttaáhugamenn þar sem mikill fjöldi af alls kyns afþreyingu er í boði, s.s. svifflug og ýmis vatnasport. Svæðið er vel tengt AP-7 og A-7 hraðbrautunum sem gerir það auðvelt að komast til annarra svæða á Costa del Sol, eins og til Puerto Banús á 30 mínútum og til Fuengirola og Marbella á 25 mínútum. Alþjóðaflugvöllurinn í Malaga er í um 30 mínútna fjarlægð.

Kjarninn býður upp 4 hæða byggingar með einstökum íbúðum með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, og eru íbúðirnar fáanlegar í mismunandi útgáfum; íbúðir á jarðhæð með stórri verönd, sumar með einkagarði, íbúðir á miðhæð með verönd, og þakíbúðir með 2 svefnherbergjum og þakverönd. Kjarninn er byggður á upphækkaðri lóð sem tryggir fallegt sjávarútsýni og útsýni yfir dæmigert La Cala de Mijas landslag með fjallasýn og golfvöllum. Staðsetning íbúðanna er með þeim hætti að þær njóta náttúrulegrar birtu og útisvæðin eru kjörin til að njóta loftslagsins á Costa del Sol. Stofan er í opnu rými með eldhúsinu, sem er með eyju, og borðstofunni sem opnast út á verönd. Hjónaherbergið er með baðherbergi inn af og a.m.k. eitt svefnherbergi er með aðgengi út á verönd.

Íbúðirnar eru byggðar úr úrvals byggingarefnum og innihalda fullbúið eldhús með góðum eldhústækjum, loftkælingu í stofunni og herbergjum, loftræstingu, fullbúin baðherbergi með handklæðaofni, rafstýrðar gardínur, fullbúna fataskápa, geymslu og bílastæði. Jarðhæðirnar og þakíbúðirnar eru með heitum potti.

Kjarninn er alveg lokaður með myndavélaeftirliti vð innganga sem tryggir íbúum öryggi, þá er brytaþjónusta í húsinu. Kjarninn býður einnig upp á frábær sameiginleg svæði með saltvatnssundlaug, stór og mikil græn svæði, Spa með gufubaði og tyrknesku baði, líkamsræktarsal með búningaherbergjum, golfhermi, vínbar, bílastæðaþjónustu og bílastæði fyrir buggy-/golfbíla.

Um er að ræða íbúðir sem eru fullkomnar til að njóta lífsins nálægt golfvöllunum á Costa del Sol.

 

See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • þakverönd
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina. 

Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi. 

  • 36 km
  • 4 km
  • 9 km
  • 3 km
  • 9 km
  • 0 km

Nánari upplýsingar um Mijas Costa

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.