TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR! Lúxus einbýlishús með 6 svefnherbergjum og stórri lóð á fyrstu línu golfsins í San Roque

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Sotogrande - San Roque

frá 675,450,000 kr
frá 4.500.000€

6

6

1220.00 m2

3700.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4966589

Lúxus einbýlishús í fremstu línu við golfvöllinn í San Roque Golf svæðinu. Svæðið er með hesthús í miðjunni, verslunarmiðstöð með veitingastöðum, kaffihúsum og matvöruverslun. Húsið er í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá fallegum ströndum svæðisins, mitt á milli Málaga og Cádiz hérðanna. Svæðið er þekkt fyrir eina bestu golfvelli Evrópu, eins og San Roque klúbbinn, Real Club Valderrama og Real Club de Golf Sotogrande. Í nágreninu eru bæirnir Sotogrande, Gibraltar, Marbella og Estepona sem hver fyrir sig býður upp á mikla afþreyingu, s.s. hafnarsvæði, póló velli, merkjavöruverslanir, Michelin veitingastaði og verslunarmiðstöðvar. Flugvöllurinn í Gíbraltar er í um 30 mínútna akstursfjarlægð og flugvöllurinn í Malaga er í um klukkustundarfjarlægð.

Húsið er byggt á 3.800 m2 lóð í rólegu umhverfi nálægt tveimur vötnum með fallegu útsýni yfir golfvöllinn. Staðsetning hússins gerir það að verkum að hægt er að njóta sólarupprásar í húsinu sem flæðir yfir húsið með fallegri gylltri birtu. Húsið er á tveimur hæðum auk þakverandar. Stofan er í beinu framhaldi af fallegu andyri en það eru tvær aðliggjandi stofur í sama rými, eldhús og borðstofa sem opnast út á stórkostlegt útisvæðið sem er yfirbyggt að hluta, fullkomið til að borða kvöldverð með fjölskyldunni, “infinity sundlaug”, og garður. Á hæðinni er einnig hjónasvítan með baðherbergi og fataherbergi, bókastofa og gestasalerni. Á neðri hæðinni eru 4 herbergi, með aðgengi að verönd, auk gestaíbúðar sem er með sér ingang bæði utanfrá og í gegnum bílskúrinn. Þar er einnig tómstundaherbergi með heimabíói, vínkjallara, líkamsrækt, sauna, leikjaherbergi og sérstöku herbergi með golfhermi. Húsið er með mörg bílastæði við innganginn og stóran bílskúr með rými fyrir 4 bíla. Þakveröndin er ekki bara fullkomin til að njóta loftlagsins á Costa del Sol og sjávarútsýnisins því hún er einnig með púttvöll.

Húsið er byggt með úrvals byggingarefnum og er með ítalskt eldhús, nútímalegan arin, postulín og viðargólf, innbyggðar hillur og skápa, ítölsk efni í veggjum á baðherbergjum og rafknúna útihurð. Útisvæðið er með fullbúin garð með 3 gosbrunnum, vökvunarkerfi og lýsingu, 18m “infinity” sundlaug með vaðlaug, heitan pott, yfirbyggðan garðskála og beint aðgengi út á golfvöll.

Stórkostlegt hús, tilbúið til innflutnings og til að njóta lúxus lífstílsins á Costa del Sol.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Sotogrande - San Roque

Sotogrande er íbúðahverfi sem tilheyrir sveitarfélaginu San Roque, á svæði Campo de Gibraltar. Sotogrande er staðsett austanmegin í Cádiz héraði, við jaðar Costa del Sol. 

Fjöldamörg íþróttamannvirki og úrval hótela á svæðinu hefur gert staðinn að einum vinsælasta lúxus áfangastað í Andalúsíu og á Spáni í heild sinni, jafnvel Evrópu allri. 

Sotogrande er einstakt svæði þar sem fjöldamargar íþróttir eru stundaðar. Þar skara fram úr póló meistaramótin sem haldin eru hvert sumar í póló klúbbnum Santa María, sem er einn af þeim bestu í Evrópu á sínu sviði. Sportbátahöfnin og siglingaklúbburinn Real Club Marítimo, sem og frábærir tennis- og paddlevellir, fullkomna framboð íþrótta í þessu þéttbýli sem tilheyrir Cádiz. 

  • 17 km
  • 14 km
  • 71 km
  • 5 km
  • 50 km
  • 13 km

Nánari upplýsingar um Sotogrande - San Roque

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.