Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Torremolinos
REF 4456663
Kjarninn býður upp á nútímalegar íbúðir með víðáttumiklu útsýni og fáanlegar með 1, 2, 3 og 4 svefnherbergjum og af mismunandi gerðum. Velja má milli eigna á jarðhæð með stórum veröndum/garði, eignum á miðhæð og þakíbúða. Allar íbúðirnar eru með opinni stofu sem sameinar eldhús, borðstofu og stofu í eitt rými. Stórir gluggar í stofunni opnast út á útisvæði. Öll hjónaherbergin eru með sér baðherbergi. Allar íbúðirnar eru með loftkælingu, eldhústækjum, geymslu og 1-2 bílastæðum (fer eftir gerð).
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Torremolinos
Torremolinos er fjölþjóðlegasti bær Andalúsíu. Á meðal meira en 68.000 íbúa, má telja yfir 100 ólík þjóðerni. Bærinn stendur 49 metra yfir sjávarmáli og er í 13 km fjarlægð frá miðborg höfuðborgar svæðisins, Málaga. Bærinn á sér langa og víðfeðma sögu eins og greina má af fönískum, grískum, rómönskum og arabískum leifum sem fundist hafa á svæðinu.
Á miðri tuttugustu öld, uppgötvaði þetta fiskiþorp hversu miklir möguleikar lægju í ferðamannaþjónustu, miðað við umfang strandlengjunnar og sökum fyrirtaks loftslags á svæðinu. Síðan þá, hefur Torremolinos þróast í það að verða einn eftirsóttasti áfangastaður ferðamanna við Costa del Sol, þökk sé miklu framboði á þjónustu við ferðamenn og gæðum allra innviða. Borgin hefur skipað sig í fyrsta sæti sem mikilvægasti ferðamannastaður í Andalúsíu, framar en borgir eins og Sevilla, Marbella eða Roquetas de Mar, og er að auki, ásamt Marbella, sú borg sem mesta framboð hefur af gistingu í allri Andalúsíu. Vinsæll áfangastaður meðal Breta, Þjóðverja, Íra, Frakka, Skandinavíubúa og Spánverja sem koma annars staðar að.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum