Íbúðir á jarðhæð með stórri verönd og sjávarútsýni í Nerja

Costa del Sol, La Axarquía, Nerja

frá 54,020,990 kr
frá 359.900€

2

2

59.57 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5022158

Einstakur íbúðakjarni með frábæru sjávarútsýni á strönd Nerja, Malaga. Kjarninn er á milli Torrox Costa og Nerja, svo hann er með aðgengi að mikilli þjónustu sem er að finna í bæjunum tveimur. Þetta hérað í Andalúsíu er þekkt fyrir fallegt landslag auk dæmigerðra hvítra þorpa. Kjörið fyrir útivistarfólk með miklu úrvali afþreyingar, s.s. göngustíga, golfvelli, og hafnir. Nerja er ekki eingöngu með fallegar strendur heldur úrval menningarstaða, s.s. Cueva de Nerja og hina frægu Balcón de Europa. Hraðbrautin A-7 og N-340 þjóðvegurinn tengja kjarnann við Costa del Sol svæðið en á flugvöllinn í Malaga eru um 50 mínútur og til Granada er um klukkustund.

Kjarninn býður upp á íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum sem eru fáanlegar í mismunandi útgáfum; jarð- og miðhæðir með stórri verönd, og þakíbúðir með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með opnu skipulagi og borðstofu sem opnast út á verönd með stórkostlegu sjávarútsýni, best þó úr íbúðunum sem eru á efri hæðum. Hjónaherbergin eru með baðherbergi innaf auk aðgengis út á verönd.

Íbúðirnar eru úr úrvals byggingaefnum og þeim fylgja fullbúið eldhús með öllum eldhústækjum, loftkæling, Smart kerfi með myndavéladyrasíma, þjófavörn, auk reyk – og vatnslekaskynjara. Hverri íbúð fylgir geymsla og bílastæði með tengi fyrir rafbíla. Aukalega er hægt að fá gólfhita, útieldhús, heitan pott fyrir 4-6 manns á þakveröndina eða einkasundlaug á jarðhæðir eða á þakveröndina.

Kjarninn er alveg lokaður og er með frábær sameiginleg svæði; 2 sundlaugar með heitum potti, eina undir berum himni og önnur innilaug sem er upphituð, stór græn svæði, gufubaðs, tyrkneskt bað, afþreyingarherbergi, vínbar, bíósal, sameiginlegt þvottahús, hjólageymslu, útsýnisstað og grillsvæði. Þá er einnig líkamsræktarsalur, tennis-og paddle völlur og fjölnota íþróttaleikvöllur, púttvöllur og golfhermir.

Frábærar íbúðir á Costa del Sol, tilvaldar til að njóta Miðjarðarhafslífstílsins.

See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, La Axarquía, Nerja

Í austasta hluta Málaga héraðs, við jaðar Granada, má finna strandbæinn Nerja, eitt af þekktustu þorpum Spánar. Þorpið er eitt vinsælasta ferðamannaþorp í La Axarquía og býður uppá mun meira en sól og strönd. Meðalhiti á ári, nálægt tuttugu gráðum, gríðarfallegt fjalllendi La Axarquía, sem og stórkostleg strandlengja þar sem skiptast á klettar og strendur, eru meðal þess sem lokkar og laðar. 

Nerja á sér langa sögu sem sannast af hellamálverkum sem fundust í hellinum Cueva de Nerja, árið 1959. Sá fundur markaði upphaf nýs tímabils, en í kjölfarið kom mikil uppbygging í ferðamannaþjónustu sem hafði í för með sér framfarir og velmegun og breytti yfirbragði félagslífs í Nerja. Í bænum búa yfir 20.000 manns en þar af er þriðji hluti af erlendu bergi brotinn, meirihlutinn af breskum uppruna. 

  • 72 km
  • 14 km
  • 38 km
  • 0 km
  • 3 km
  • 14 km

Nánari upplýsingar um Nerja

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.