Costa Blanca Norður, L'Alacantí, El Campello
REF 3641722
Nýr kjarni einbýlishúsa í íbúðahverfi í Alicante, við norður Costa Blanca. Kjarninn er í stuttri akstursfjarlægð frá bænum El Campello, með fullkomnu úrvali af daglegum þægindum, svo sem matvöruverslunum, verslunum, börum og veitingastöðum. Borgirnar Alicante og Benidorm eru í innan við 30 mínútna akstursfjarlægð. Svæðið býður einnig upp á margs konar útivist eins og golf, gönguferðir og vatnaíþróttir.
Nútímaleg tveggja hæða einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, byggð á lóðum frá 388m2-647m2. Aðalhæðin samanstendur af rúmgóðri setustofu, borðstofu og eldhúsi en alrýmið opnast út á stóra verönd og sundlaugarsvæði. Svefnherbergi og baðherbergi má finna á þessari hæð líka. Tvö en-suite svefnherbergi eru á efri hæð með aðgangi að verönd. 50m2 þakveröndin er kjörinn staður til að njóta útsýnisins yfir nærliggjandi svæði.
Eignirnar eru búnar gæðafrágangi og afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu. Þeim fylgja innréttaðir fataskápar, einkasundlaug með útisturtu og bílastæði á lóð. Þá má velja um ýmislegt til viðbótar gegn aukakostnaði.
Costa Blanca Norður, L'Alacantí, El Campello
Campello er borg í hjarta Costa Blanca og mjög nálægt stærstu borgunum, í 10 km. fjarlægð frá Alicante og 30 km. frá Benidorm. Fiskiþorp sem á síðustu árum hefur aðlagað sig breyttum áherslum og er nú vinsæll fyrsta flokks ferðamannastaður.
Meðfram 23 km. langri ströndinni, sem er sú lengsta á Costa Blanca, er að finna margskonar íbúðabyggðir með miklu fasteignaframboði. Í gamla miðbænum og nálægt ströndinni einkennist úrvalið af gæðum á góðu verði. Í útjaðri borgarinnar eru nýlegar íbúðabyggðir og eru það aðallega einbýli og raðhús, mörg hver með ótrúlegu sjávarútsýni. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í El Campello
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum