Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 229358
Einbýlishús á rólegu svæði í Ciudad Quesada. Í 10 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Guardamar og með alhliða þjónustu og tómstundaaðstöðu.
Húsin eru 101 m2 og byggð á tveimur hæðum. Á jarðhæð er svefnherbergi, baðherbergi, björt stofa/borðstofa og nútíma eldhús en eldhústækin eru innifalin í verði. Á efri hæð eru tvö stór svefnherbergi, baðherbergi og rúmgóð verönd. Húsin eru byggð á allt að 204 m2 lóðum og öllum eignum fylgir einkasundlaug og garður. Í sumum húsanna er möguleiki á kjallara og/eða þakverönd
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum