Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 3061284
Nýr kjarni 16 parhúsa, í Ciudad Quesada, Rojales. Aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá stórkostlegum ströndum Guardamar og Torrevieja, og nálægt fallegum þjóðgarði Laguna de la Mata. Öll nauðsynleg þjónusta er skammt undan; matvöruverslanir, bankar, apótek, barir og veitingastaðir, svo eitthvað sé nefnt.
Í boði eru parhús á tveimur hæðum, öll með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum (annað þeirra ensuite) og gestasalerni. Rúmgóð og björt stofa er tengd við amerískt eldhús, með aðgangi að verönd og garði. Þakverönd fylgir húsunum og er gengið uppá hana af efri hæðar svölum. Gæða frágangur er á eignunum og innifalið í verði er loftkæling/hitun og bílastæði.
Einkasundlaug valfrjáls
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum