Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 3073276
Staðsett í friðsælu íbúðarhverfi í útjaðri Quesada við suður Costa Blanca, í stuttri akstursfjarlægð frá aðalverslanasvæði Quesada, golfvelli, 4 stjörnu hóteli, íþróttamannvirkjum og vatnagarði. Stórkostlegar strendur Guardamar eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð. Þéttbýliskjarnarnir Santa Pola, Torrevieja og Orihuela Costa eru vel tengdir við svæðið. Einbýlishús, byggt á 423m2 lóð, með 4 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og 140m2 þakverönd. Rúmgóð opin stofa með borðstofu og nútímalegt eldhús. Aðalveröndin og sundlaugarsvæðið eru aðgengileg frá stofunni og tveimur svefnherbergjum. Húsið er afhent tilbúið til uppsetningar á loftkælingu, því fylgja eldhústæki, lýsing, húsgögn, fullbúinn garður, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum