Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 126630
Töfrandi lúxus einbýli með sjávarútsýni við Las Colinas Golf sem er eitt fallegasta svæði Orihuela Costa. Auk golfvallarins hefur Las Colinas fram að bjóða aðra aðstöðu til íþróttaiðkana, svo sem tennisvelli, paddle tennis, líkamsræktarstöð og fallega 3 km gönguleið. Þar eru einnig klúbbur, veitingastaðir, kaffihús og verslanir, auk þess sem íbúum Las Colinas er boðið uppá aðgengi að strandarklúbbi við ströndina La Glea í Campoamor.
Húsið er nútímalegt með stórum opnum rýmum, og tvöfaldri lofthæð í stofu ásamt glerveggjum. Húsið hefur þrjú svefnherbergi, öll með baðherbergi, gestasalerni, fallega hannað eldhús og rúmgóðan kjallara með tvöföldum bílskúr og herbergi með baðherbergi.
Lóðin er yfir 2.000 m2, og húsið hefur 450 m2 af veröndum sem dreifast á nokkrar hæðir og skapa mismunandi rými. Þar á meðal er stór þakverönd með svæði til afslöppunar og glæsilegu útsýni til sjávar.
Í húsinu er hiti í gólfum, nema í kjallara, loftkæling og svokölluð infinity sundlaug ásamt fleiri aukaatriðum sem prýða lúxus einbýli.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Las Colinas Golfklúbburinn er staðsettur í Orihuela Costa, í 330 hektara dal á milli hóla og sjávar. Einstök íbúðabyggð í forréttindaflokki, sem dreift er í kringum hinn frábæra golfvöll Colinas Golf. Þetta er ein af fáum lokuðu byggðum á svæðinu, en eftirlit er með aðgangi allan sólarhringinn.
Úrvalsíbúðir og glæsihús eru í boði fyrir íbúa Las Colinas Golf, ásamt ró og kyrrð í öruggu umhverfi, þökk sé þjónustu staðarhaldara. Má nefna Casa Club, þar sem finna má veitingastaði og verslanir, og Colinas Beach Club, sem er við ströndina við Campoamor og einungis fyrir húseigendur og íbúa Las Colinas Golf. Skoðið íbúðir og einbýli í Las Colinas Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum