Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 1993441
EInbýlishús á hinu glæsilega svæði Las Colinas Golf. Falleg náttúra einkennir Las Colinas, með appelsínutrjám, furuskógum og öðrum Miðjarðarhafsgróðri ásamt glæsilegum golfvellinum, 18 holu Championship velli. Gönguleiðir og aðstaða til íþróttaiðkana eru á svæðinu sem er í einungis 10 mínútna akstursfjarlægð frá hinni vinsælu verslanamiðstöð, Zenia Boulevard og ströndum Orihuela Costa. Lúxus hverfi sem girt er af og vaktað, tilvalið fyrir þá sem vilja frið og ró og fallega náttúru.
Einbýlishúsin eru byggð á lóðum milli 721m2 og 2.451m2 að stærð og velja má um 3 eða 4 svefnherbergi og kjallara að auki, sem býður uppá marga möguleika. Bjartar og fallegar eignir þar sem dagsbirtan nýtur sín til fulls, hátt er til lofts og stórir gluggar gefa húsunum gildi. Stofa, borðstofa og eldhús eru sameinuð í rúmgott alrými sem opnast útá stóra verönd, sem er að hluta til yfirbyggð og sundlaugarsvæðið. Öll svefnherbergi eru með fataskápum og sér baðherbergi, en í hjónaherbergi er fataherbergi.
Útisvæðið er fallega hannað með svokallaðri infinity sundlaug á tveimur pöllum og svæði til afslöppunar á neðri pallinum.
Húsunum fylgir loftkæling og hitun, fullbúið eldhús, snjallkerfi til fjarstýringar á ýmsum búnaði, gólfhiti á baðherbergjunum, lýsing, innanhúss og utan ásamt fullfrágengnum garði með vökvunarkerfi og rafmagnshliðum.
Ef valið er hús með 3 svefnherbergjum, hefur það auka gestasalerni og opið bílastæði með aðliggjandi geymslu. Hús með 4 svefnherbergjum kemur með kjallara með bílskúr fyrir allt að tvo bíla, geymslu og þvottahúsi, gestasalerni og fjölnota herbergi. Gera má ýmsar breytingar sé þess óskað, þar sem húsin eru seld af teikningum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Las Colinas Golfklúbburinn er staðsettur í Orihuela Costa, í 330 hektara dal á milli hóla og sjávar. Einstök íbúðabyggð í forréttindaflokki, sem dreift er í kringum hinn frábæra golfvöll Colinas Golf. Þetta er ein af fáum lokuðu byggðum á svæðinu, en eftirlit er með aðgangi allan sólarhringinn.
Úrvalsíbúðir og glæsihús eru í boði fyrir íbúa Las Colinas Golf, ásamt ró og kyrrð í öruggu umhverfi, þökk sé þjónustu staðarhaldara. Má nefna Casa Club, þar sem finna má veitingastaði og verslanir, og Colinas Beach Club, sem er við ströndina við Campoamor og einungis fyrir húseigendur og íbúa Las Colinas Golf. Skoðið íbúðir og einbýli í Las Colinas Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum