Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 2702604
Raðhús staðsett á fínum stað í Orihuela Costa. Aðeins 3 km frá Playa Flamenca, 5 mínútur Villamartin golfvellinum og Villamartin Plaza sem býður upp á þjónustu og líf allan ársins hring. Einnig nálægt Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni.
Húsin eru nútímaleg, byggð á tveimur hæðum en stærð lóða er allt að 208m2. Möguleiki á að velja á milli 2ja eða 3ja svefnherbergja en öll húsin hafa 3 baðherbergi, 2 af þeim ensuite, stóra verönd og eigin þakverönd auk bílastæðis á lóðinni. Gólfhiti er á baðherbergjum og húsin eru klár fyrir uppsetningu á loftkælingu.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum