Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Vistabella Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 110549
Flott einbýli við golfvöllinn Vistabella í 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Orihuela Costa. Verslanakjarni og aðstaða til íþróttaiðkana er á staðnum auk paddle tennisvallar og keilusals.
Húsin eru byggð á lóðum frá 350 til 525 m2 að stærð, hvert þeirra með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og stórum veröndum. Gera má einhverjar breytingar eftir höfði kaupanda og möguleiki er að byggja einkasundlaug í garðinum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Vistabella Golf
Vistabella Golf er íbúðahverfi hannað við golfvöllinn Vistabella. Hverfið tilheyrir Orihuela og er í aðeins 15 km fjarlægð frá ströndum Orihuela Costa. Í hverfinu er verslanasvæði með matvöruverslunum, veitingastöðum og annarri þjónustu. Í nærliggjandi bæjum, Los Montesinos og San Miguel de Salinas er einnig gott úrval af veitingastöðum, börum og verslunum.
Golfvöllurinn sjálfur er 18 holur og mjög aðlaðandi fyrir alla tegundir leikmanna, fjölbreytni er eitt helsta einkenni vallarins og fallegt umhverfi. Önnur aðstaða til íþróttaiðkana er enn fremur á staðnum, þar á meðal róðrarvélar, tennisvellir og frábær aðstaða til að spila keilu. Staðsetningin og gæði eignanna gerir Vistabella Golf tilvalið svæði fyrir þá sem leita að heimili á góðu verði, fallegu náttúrulegu umhverfi og án þess að vera of langt frá ströndinni.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum