Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Torre de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 3067271
Nýr kjarni raðhúsa í Torre de la Horadada, strandsvæði sem tilheyrir Pilar de la Horadada, við suður Costa Blanca. Í göngufæri frá öllum nauðsynlegum þægindum, svo sem verslunum, börum, veitingahúsum, apóteki o.fl. Aðeins 500m eru niður að strönd. Bærinn Pilar de la Horadada og verslunarmiðstöðin Dos Mares, eru skammt undan. Góð vegatenging er frá svæðinu við næstu borgir og bæi og svæðið hentar þannig fólki sem vill dvelja í lengri eða skemmri tíma jafnt sem þeim sem kjósa að flytja búsetu og dvelja allt árið um kring.
Kjarninn samanstendur af raðhúsum með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, stórum hellulögðum garði og þakverönd. Opin stofa, eldhús og borðstofa er bjart og fallegt rými, þökk sé stórum gluggum í hvorum enda fyrir sig. Á jarðhæð er svefnherbergi og baðherbergi og á efri hæð, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Hjónaherbergi opnast á sér verönd, sem liggur upp á þakverönd hússins.
Stór sundlaug, svæði til afslöppunar, stæði fyrir reiðhjól og bílakjallari eru í sameign.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Torre de la Horadada
Torre de la Horadada er syðsta sveitarfélagið á Costa Blanca. Lítill ferðamannabær með 5 km strandlengju og nokkrar strendur sem hafa fengið Bláfánann, aðgreining, þar á meðal Las Mil Palmeras, El Conde, Las Villas og Las Higuericas
Torre de la Horadada er svæði þar sem þéttbýlisþróun felur aðallega í sér byggingu íbúða með einbýlishúsum og raðhúsum og lághýsum íbúðum. Fyrir þá sem hafa áhuga á að kaupa rúmgóða eign á Spáni nálægt ströndinni og með allri þeirri þjónustu sem þarf til daglegs lífs er Torre de la Horadada mjög áhugaverður kostur. Finndu nánari upplýsingar um eignirnar sem við höfum til sölu í Torre de la Horadada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum