Costa Blanca Suður, Vega Baja (Interior), Dolores
Þessi eign er ekki í boði
REF 3743148
Kjarni húsa í Dolores, rólegum bæ í miðri Vega Baja, sem umkringdur er grænum túnum og pálmatrjám. Bærinn er um 20 km frá ströndinni og góð vegatenging er við stærri bæi í kring, svo sem La Marina og Guardamar.
Húsin eru byggð á tveimur hæðum og velja má um einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum eða fjórbýli með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Rúmgóð stofa, nútíma eldhús og borðstofa er í húsunum en úr alrými er gengið útá yfirbyggða verönd, einkasundlaug og garð. Húsin eru vel byggð og hafa góða orkunýtni.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Interior), Dolores
Dolores er bær inni í landi við suður Costa Blanca, í um 20 km. fjarlægð frá ströndu. Þar er að finna dæmigerða Miðjarðarhafssveit, með víðáttumiklum appelsínu - og sítrónuökrum.
Fyrir þá sem kjósa ró og frið, hlýja vetur og rúmgóðar fasteignir á góðu verði, er Dolores mjög góður kostur. Þar er að finna áhugaverðar nýbyggingar, nútímaleg einbýli í gæðaflokki á samkeppnishæfum verðum. Hikið ekki og skoðið fasteignirnar í Dolores
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum