Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Þessi eign er ekki í boði
REF 3553546
Einbýlishús á frábærum stað, aðeins 800m frá ströndinni í Santiago de la Ribera. Bærinn býður upp á fullkomið úrval af þægindum, verslunum, börum og veitingastöðum og aðeins 10 mínútur tekur að aka að hinni glæsilegu verslunarmiðstöð Dos Mares. Þá er mikið tómstunda- og þróttastarf í boði á svæðinu, eins og golf, tennis, hjólreiðar, gönguferðir og vatnaíþróttir. Þökk sé AP7 hraðbrautinni er svæðið vel tengt öðrum helstu borgum, eins og Alicante, Murcia og Cartagena.
Einstakt tækifæri til að láta byggja eigið einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum á lóðinni sem er 310m2. Velja má um tvær gerðir; tveggja hæða líkan með rúmgóðri verönd eða hús á einni hæð með þakverönd. Báðar gerðirnar hafa rúmgóða setustofu með borðkrók og eldhúsi og alrýmið liggur út á stóra verönd og garðsvæði með einkasundlaug. Hjónaherbergið, er með sérbaðherbergi.
Húsin eru búin gæðafrágangi og þeim fylgja eldhústæki, einkasundlaug og bílastæði á lóð. Eignirnar eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu.Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Murcia svæðið, inni í landi, er tilvalið fyrir þá sem vilja hvílast eða stunda íþróttir og njóta fallegrar náttúru og góðrar matargerðar.
Svæðið er eitt stærsta framleiðslusvæði ávaxta, grænmetis og blóma í Evrópu, auk þess sem þekktar vínekrur eru í Jumilla, Bullas og Yecla með tilheyrandi vínbúgörðum og framleiðslu. Náttúran er falleg í Murcia og má þar nefna Sierra Espuña og Ricote dalinn en Murcia er ennfremur rík að listum og menningararfi. Í Murcia er framúrskarandi Miðjarðarhafsloftslag og fasteignamarkaðurinn býður uppá gæðaeignir á mjög góðu verði, aðallega einbýlishús.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum