Costa Cálida, Mar Menor, Cartagena Litoral Levante, Mar de Cristal
Þessi eign er ekki í boði
REF 2028106
Nýr kjarni einbýlishúsa við Mar de Cristal, sem staðsett er við strandlengju Costa Cálida. Aðeins 400m eru að gæðaströndum Mar de Cristal, og alla nauðsynlega daglega þjónustu má finna í nágrenninu og í bænum Los Belones. La Manga Club, með 54 holu golfvelli, er í stuttri akstursfjarlægð. Góðir vegir og lestarsamgöngur tengja svæðið við helstu borgir eins og Murcia og Cartagena. Þrír alþjóðlegir flugvellir eru á svæðinu.
Húsin eru byggð á 450m2 lóðum og samanstanda af 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Eldhús og rúmgóð opin stofa og borðstofa opnast útá tvennar verandir, sem að hluta til eru yfirbyggðar og liggja að garðinum. Öll svefnherbergi eru með fataskápum og hjónaherbergi er með baðherbergi og fataherbergi. Eignirnar bjóða uppá möguleika á sérhönnun og bæta má við eigin sundlaug.
Afhentar tilbúnar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun og með fullbúnu eldhúsi, þvottahúsi, geymslu og bílast
Costa Cálida, Mar Menor, Cartagena Litoral Levante, Mar de Cristal
Mar de Cristal tilheyrir Cartagena eins og áður segir. Ströndin þar er þekkt fyrir tært vatnið eins og nafnið gefur til kynna en Cristal þýðir gler.
Ströndin hefur oftast verið heiðruð með Bláa Flagginu af öllum ströndum Murcia. Fyrir frábæra staðsetningu og fyrirtaks veðurfar, er Mar de Cristal álitin standa fremst í flokki, bæði hvað varðar sumarleyfisdvalarstað og þegar kaupa skal fasteign erlendis, nánar tiltekið í Murcia héraði. Þar er framboð þjónustu mjög gott, með veitingastöðum, verslunum, aðstöðu til íþróttaiðkana og öllu öðru sem nauðsynlegt er þegar fólk kemur sér upp heimili á Spáni.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum