Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 3041714
Ný einbýlishús í Los Alcázares, staðsett við hliðina á golfvellinum Serena Golf, í aðeins 1 km fjarlægð frá ströndum Mar Menor og mjög nálægt allri þjónustu á þessum fallega stað við Costa Cálida. Tilvalin staðsetning fyrir þá sem leita að sól og strönd í fallegu náttúrulegu umhverfi.
Húsin eru byggð á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum, en þar af er eitt sem kalla mætti svítu. 3 baðherbergi eru í húsinu og opin og björt stofa tengd nútíma eldhúsi. Yfirbyggt bílastæði fylgir eignunum og verandir eru á báðum hæðum, auk þakverandar. Mögulegt er að koma fyrir einkasundlaug á lóðinni.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum