Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 3535540
Fallegur kjarni við sjávarsíðuna í Santiago de la Ribera, við Costa Cálida. Kjarninn er nálægt ýmsum daglegum þægindum og í stuttri akstursfjarlægð frá Dos Mares verslunarmiðstöðinni, með miklu úrvali af matvöruverslunum, verslunum, börum og veitingastöðum. Stórkostlegar hvítar sandstrendur Mar Menor eru í innan við 100 metra fjarlægð þar sem stunda má ýmsar vatnaíþróttir. Þá má njóta annars konar útivistar, eins og golfs og gönguferða á í nærliggjandi svæðum, allt árið um kring.
Kjarninn samanstendur af íbúðum með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, af tveimur gerðum; íbúðir á jarðhæð með sér verönd og íbúðir á efri hæð með sér þakverönd. Aðalrýmið sameinar stofu, borðkrók og eldhús í amerískum stíl og opnast út á rúmgóða verönd. Íbúðir á jarðhæð eru með verönd að framan og aftan en íbúðir á efri hæð hafa eigin þakverönd. Sameiginlegur garður er í kjarnanum, með svæði til afslöppunar og sundlaug til að kæla sig í.
Íbúðirnar eru afhentar með uppsetningu fyrir loftkælingu, innbyggðum fataskápum og bílastæði á sameiginlegu bílastæði. Þá má breyta eignunum með því að bæta við þriðja svefnherberginu í hluta af stofunni.Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum