Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 3670452
Einbýlishús, rúmlega 1 km frá ströndinni í Santiago de la Ribera, milli bæjanna San Pedro del Pinatar og Los Alcázares, við Costa Cálida. Öll nauðsynleg dagleg þjónusta er í boði á svæðinu, svo sem matvöruverslanir, verslanir, barir og veitingastaðir og góð vegatenging er við nærliggjandi bæi, þökk sé N332 þjóðveginum.
Nútímalegt tveggja hæða einbýlishús, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, byggt á 375m2 lóð. Stórar glerhurðar á jarðhæð hleypa birtu í húsið og gera setustofuna, borðkrókinn og eldhúsið að björtu og aðlaðandi rými. Gestasalerni og hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi, má einnig finna á jarðhæð. Á efri hæð eru svo tvö en-suite svefnherbergi, bæði með aðgangi að stórri verönd.
Góður frágangur er á eigninni og henni fylgir loftkæling, eldhústæki, fataskápar, einkasundlaug og bílastæði á lóð.Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum