Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol
Þessi eign er ekki í boði
REF 2063505
Síðustu íbúðirnar, tilbúnar til afhendingar, staðsettar í einstöku hverfi Cumbre del Sol. Cumbre del Sol er við hlið bæjarins Moraira og nærri Calpe og Javea. Þökk sé stórkostlegum klettum, býður staðsetning húsanna uppá einstakt útsýni yfir Miðjarðarhafið. Staðurinn er enn fremur umkringdur grænum þjóðgörðum, svo sem Portet de Moraira og Granadella þjóðgarðinum í Javea. Í Cumbre del Sol hverfinu sjálfu er veitingastaður, apótek og matvöruverslun en að auki er stutt í næstu bæi, Moraira og Javea, með öllu því úrvali þjónustu sem þar er. Tilvalinn staður fyrir náttúrudýrkendur og þá sem stunda vatnaíþróttir, án þess að þægindum sem nærliggjandi bæir bjóða upp á sé fórnað.
Íbúðirnar eru í kjarna með frábærum sameiginlegum svæðum svo sem tveimur stórum sundlaugum, félagsklúbbi og leiksvæði fyrir börnin. Síðustu 2ja og 3ja svefnherbergja íbúðirnar eru í boði, sumar þeirra með frábæru útsýni yfir hafið.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol
Cumbre del Sol tilheyrir bæjarfélaginu Benitachell, sem liggur milli tveggja vel þekktra bæja, Jávea og Moraira, og er í aðeins 12 km fjarlægð frá Calpe, 10 km frá AP7 hraðbrautinni, 30 km frá Benidorm, 75 km frá Alicante og 102 km frá Valencia.
Magnaðir klettar, sem sumir eru yfir 100 metra háir bjóða íbúum svæðisins uppá stórkostlegt útsýni yfir hafið frá nokkrum útsýnisstöðum umkringdum vernduðum svæðum eins og þjóðgarðinum Natural Park of Granadella, þar sem ganga má í hæðunum yfir klettana og skoða hellana
Strandlengjan við Benitachell er tilvalin fyrir þá sem hafa gaman af köfun og öðrum vatnaíþróttum. Frá Cumbre del Sol er beinn aðgangur að þremur fallegustu klettavíkum héraðsins, Cala Moraig, Cala de Los Testos, og Cala del Llebeig.
Nálægð svæðisins við bæina Jávea og Moraira gerir það að tilvöldum stað fyrir þá sem leita að eign við Costa Blanca í gríðarfallegri náttúru þar sem að auki má finna góða þjónustu. Cumbre del Sol er þannig einstök staðsetning.
Svæðið teygir sig eftir strandlengjunni um 3.700.000 m2, og skiptist í nokkur íbúðahverfi með einbýlum, raðhúsum og íbúðum sem öll eru umkringd gróðursælum reitum og Miðjarðarhafið er skammt undan.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum