Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Þessi eign er ekki í boði
REF 1438326
Glæsilegar íbúðir í Finestrat, mjög nálægt borginni Benidorm. Aðeins 2 km frá ströndinni og með fallegu útsýni yfir Miðjarðarhafið og borgina í Benidorm.
Í boði eru eignir með 2 svefnherbergjum. Íbúðir á jarðhæð hafa góðan garð og verönd og í nýjum fasa fylgir þeim kjallari með baðherbergi og þannig hægt að bæta við herbergi. Íbúðir á miðhæð eru með 25 m2 verönd og þakíbúðir hafa aukahæð sem hægt er að nýta í fleiri herbergi en auk þess er stór þakverönd með grillaðstöðu hluti af þeim eignum.
Loftkæling/hitun er innifalin í verði, auk eldhústækja eða nútíma svokallaðs domotic kerfis sem gerir fólki kleift að fjarstýra ýmsu í eigninni. Í kjarnanum eru bílastæði fyrir reiðhjól, garðar, sameiginleg sundlaug og líkamsrækt með finnsku gufubaði.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Finestrat er einn af bæjunum í Alicante-héraði sem sameinar kjarna svæðisins: sjó og fjöll.
Finestrat þýðir fjall, vegna þess að söguleg miðbær bæjarins liggur við rætur hins glæsilega Puig Campana, sem er tvímælalaust sá tindur sem hefur mestan karakter í öllu héraðinu. Finestrat er líka Miðjarðarhafið; fleyglaga bæjarsvæðið nær allt að ströndinni við Cala Morales, almennt þekkt sem Cala de Finestrat.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum